þriðjudagur, október 07, 2003

Venjulegur dagur. Þarf að vakna snemma á morgun. Þá meina ég snemma. Er ein af þeim sem að er að rembast við það að fara í "ræktina" 3var í viku og þegar ég skoðaði dagskránna með mínum þá komst ég að því að eini tíminn sem að var laus (þ.e.a.s. sem að ég mátti fara) var áður en allir hinir á heimilinu vöknuðu.

Svo verð ég líka að fara beint heim til að koma öllum hinum á fætur og af stað í skóla og vinnu. Guð forði HONUM frá því að gera þetta sjálfur 3var í viku - aleinn!

Hver eru einkennin af "Superwoman" heilkenninu??? Ræktin, börnin, vinnan, maðurinn, heimilið ,vinirnir, fjölskyldan (aðrir en þeir sem deila með manni heimilisfangi), áhugamálin, og örugglega eitthvað fleira sem að ég er að gleyma.

Sinna öllu vel og klúðra aldrei neinu. Reyni þetta!!! ...SURE

Geri of lítið af flestu og of mikið af hinu. Spurninginn er svo hvað er hvað...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home