miðvikudagur, október 08, 2003

Hvað á maður að gera við fólk sem að þarf allt of mikið?

Það er til fólk þarna úti sem að virðist ekki ráða við sig. Þú veist um hvaða fólk ég er að tala. Þeir sem að hringja bara til að kvarta í þér að þú hringir ekki nógu oft í það eða komir nú ekki nóg í heimsókn eða þá bara að þú standir þig nú ekki nógu vel í því að gera nóg með þeim. Það er aldrei neitt NÓG fyrir þau.

Ég þekki svona fólk. Fullt af þeim. Hvað er það með þetta fólk heldur það í alvörunni að það fái mig eitthvað til að hlaupa í heimsókn eða hringja stax á morgun ef að það suðar í mér um það hvað þessi hluti af mér semað það fær sé ekki nóg. Ég á þá náttúrulega að segja (með bros á vör – notabene) “gjörðu svo vel að fá þér meira”. Er það ekki???

Svo hafiði tekið eftir því að samtalið við þetta fólk snýst svo sjaldan um neitt annað en það sjálft. Ég er að gera þetta, ég þarf á ráðleggingum að halda (sem að ég ætla svo ekki að fara eftir hvort eð er, svo ekki eyða púðri), ég er svona. Allt sagt í einhverjum afsökunnartón – eða ekki beint afsökunnartón heldur... ...þú veist, þessum tón sem að segir mér líður illa og ég þarf á því að halda að einhver segi við mig að ég sé frábær tón. Svo að þú verður að peppa viðkomandi upp. Setja upp hughreystandi-grímuna (sem að felur “shut the fuck up” svipinn á andlitinu)og segja allt sem til þarf til að þetta fólk geti farið heim til sín ánægt. Bara svo það FARI. Kannastu við þetta???

Af hverju er fólk svona djö... þurfandi? Líkaðu vel við mig, taktu eftir mér, vertu með mér, fyrir mig, hugsaðu um mig. Það er náttúrulega sorglegt að vera enn þá svona á fullorðinsárum. Eins og barn sem að þarf athygli. En þetta er samt óþolandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home