þriðjudagur, desember 09, 2003

Jæja!

Núna er komin harka í þetta! Bloggsíðukeppnin er hafin og væntanlega líður ekki á löngu áður en allir verða búnir að ganga alveg heilu og hálfu kílómetrana yfir strikið í stigum fyrir síður annarra. Ég veit fyrir víst að það býr "smá" keppnisskap í brjóstum þessarra kvnena sem taka hér þátt svo að þetta verður örugglega mjög fróðlegt að fylgjast með. Set slóðina hér til hliðar svo að forvitnir geti lagt sitt í púkkið.

Ég er ánægð með að Flúðaselsgengið hafi verið slegið af sem dómarar. Það er ánægjulegt að vita til þess að einhver þarna er með fullu viti og fær um að taka ákvarðanir byggðar á einhverju sem að er ekki bara tekið úr lausu lofti (Gulla ég er að tala um þig)... ...(þ.e.a.s. þú ert sú með vitið - fékk allavega póstin frá þér um dómarabreytingar). Gulla fær eitt stig bara fyrir það.

Annars er það bara að frétta að ég klikkaði á Survivor bíóferðinni. Var ekki að meika það í gærkvöldi. Er að leka niður úr þreytu og vill svefn en er að fara í hárreddingar til I í kvöld. Og U Blíf Me það eru reddingar. Veitti ekki af að fara í ljós líka. En er samt geðveikt falleg.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home