Svindlari svindlari...
Búin að vera lítill ljótur svindlari í átakinu mínu síðan á sunnudaginn. Ekkert verið að telja kaloríur, ekkert farið í ræktina og allt í vitleysu. En núna ætla ég að skríða á vagninn aftur ( ef að ég kem mínum feita upp á hann) og það verður ekkert gefið eftir núna. Nenni ekki lengur þessu lærapokavandamáli o.fl. Það er samt svo fyndið að þetta er aldrei neitt vandamál nema þegar ég er nálægt spegli. Það er alveg stórmerkilegt hvernig ég skynja mig enn þá sem 53 kíló eins og ég var þegar ég var að dansa og í topp formi. Svo kemur kafteinn “jú-sukk” spegill og ég er minnt á það að ég er 31 árs gömul kelling með kellingakropp. Selló allsstaðar og keppi á stöðum sem ég kann ekki að nefna. Svo finnst mér ég vera langflottust – þarf bara að matsa ytri skelina við innri. Hljómar auðvelt – er það ekki???

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home