föstudagur, október 10, 2003

Jæja nýr dagur og ný helgi! jibbíííííí

Líður ykkur ekki svona líka? Fór í ræktina í morgun (of sein) en finnst ég vera rosa healthy og flott. Aðalega flott sko. Við skulum alveg hafa það á hreinu!

Prógramið alveg að smella saman fyrir helgina, ef að prógram skildi kalla. Rólegt kvöld í kvöld og aðalega farið að sofa snemma (sem að gerist alltaf þegar ég ætla að gera það ) ;-). Svo annað kvöld verður kannski e-ð nett. Ekkert mikið þótt að ég sé nú alveg komin á tíma með svoleiðis. Það er bara þannig að djammlífið þolir bara engann veginn svona hot babe eins og mig svo oft á djamminu. Maður verður nú að gefa öðrum séns á smá athygli. Sko - það er ekki að ég sé orðin svo gömul (sem að virðist vera skoðun sumra - nefni enginn nöfn, en þið vitið hver þið eruð) heldur er ég svo tillitsöm við náungann.

Memo to me: Fara í það hvað orðin afneitun og sjálfsblekking þýða!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home