fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Líkamsrækatarfrík!!!

Hélt nú aldrei að ég yrði ein af þessum manneskjum ( og lít svo sannarlega ekki út fyrir það) sem að tek sportið helst til alvarlega. En núna er það komið. Nú á að fara að æfa með Lottu 2var í viku og ég sjálf 3var. Sem sagt er mín í Sporthúsinu 5 sinnum í viku kl.6. Á nú eftir að sjá hvernig gengur en þetta þýðir að ég hitti manninn minn á morgnana um helgar. Annars er hann að vinna fram undir miðnætti (ef ekki fram yfir það) og ég ekki heima á morgnana.
Það verður líka spennandi að vita hvernig han plummar sig með að sjá um krakkana einn alla morgna. Fullt af skemmtilegum hlutum þar.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home