Örfréttir
Mamma er að fara til Moskvu. Hún er hetja. Ég myndi ekki þora því. Er svo matvönd að ég hefði áhyggjur af því að svelta þar. Ég er ekki að grínast.
Gæsirnar eru orðnar hjón. Til lukku krúttin mín og takk fyrir að bera mig út í bíl. Skilst hjá þeim sem skilja. Já nema þær sem löglegar eru þær skilja náttúrulega ekki neitt.
Stoðkerfið er að koma til og legurnar eru að ganga til baka. Er víst heppinn samkv. lækni að þurfa bara að liggja á bakinu einu sinni á ári í eina viku vegna þess. Já já engar dónahugs....
Það er gaman að vera til, segir maður. En það kannast enginn við hann. Auglýsum eftir þessum vitleysingi.
Vill einhver borga námslánin mín? Bara spyr. Ætli ég geti selt Sjóvá eitthvað? Kannski hmmm...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home