Nú er frost á Fróni frís í æðum blóð....
Hvað er þetta ofaná brauð??? Það sem að ég þoli minnst ( og athugið – minnst, því að listinn er langur) við þennan árstíma að það er eins og veðurguðirnir séu útúrskakkir. Það er sól eina mínútuna og snjór hina. Logn þegar þú stígur út úr bílnum og 30 m/s og grenjandi rigning áður en þú getur opnað hurðina heima hjá þér. Ég fór að sofa í fínasta veðri í gær. Milt og rólegt og snjórinn sem að kyngdi niður um helgina á einhverjum 3 tímum að hverfa. Svo vaknaði ég í nótt til að fara í Sporthúsið (eins og það eitt að fara út svona á nóttinni sé ekki næg móðgun) og þá mætti mér bara svona sköfudagur. Snjór snjór snjór og meiri snjór. Er ekki kominn miður apríl og var ekki vor í gær???? Er komin með nóg af þessu – það má alveg fara að renna af veðurguðunum og þeir að fara að vinna að vori.
Ég var að setja börnin mín (blessuð börnin) í rúmið í gær og við náttúrulega fórum í viðeigandi dagskrá – bursta, pissa og þvo. Og hún Hanna mín opnar fínt munninn og mamma hennar ræðst á tennurnar með tannburstanum. Ekkert hangs hér, gera þetta almennilega. Henni finnst þetta nú venjulega ekkert gaman en í þetta skipti var mín með aumari svip en venjulega. Svo tók ég eftir því að það var eins og ein neðri framtönnin væri að snúast á hlið. Jú jú það er rétt. Allir búnir að fatta á þessum punkti nema mamma. Ég lét hana skola og ætlaði þá að skoða hvort að fleiri tennur væru að skekkjast vegna plássleysis. En þá var stelpan mín bara að verða stór að missa barnatennurnar. Rosa montin og spennt að fá fullorðins. Hún segir að þær komi á morgun – allar fullorðinstennurnar. “Bara á morgun”.
Kallinn er búin að vera í spæjóleik síðan á páskunum þegar öllu dótinu hans var stolið ( já eina ferðina en) og er svona líka skolli góður í þessum leik. Er búinn að fá nánast allt dótið sitt aftur. Miðað við áhugann hjá löggunni sem að vildi ekkert vita og hvað þá gera þá er spurning hvort að hann fari ekki bara að bjóða þjónustuna út. Það var farið með nöfn og allt til löggunnar og í alla staði unnin vinnan þeirra fyrir þá en þeir á Breiðholtsstöðinni vildu ekkert gera. “Það er ekkert hægt að gera í þessu hvort eð er. Við getum ekkert sannað á þá”. Og mér er spurn til hvers er löggan þá ef að hún gerir ekki neitt. Það er allavega hægt að ræða við þessa gutta þannig að þeir viti að fólk fylgist með þeim í staðin er ástandið orðið svoleiðis að allir og ég meina allir sem að talað var við byrjuðu á því að hlægja og segja “hringdu á lögguna, þeir gera ekkert” svona hugsar þetta lið. Við búum ekki í lögregluríki (eins og margir vilja nú meina) heldur er þetta bara gamla “góða” survival of the fittest ( eða crulest). Og ég er bara ekki á því að leyfa þessum aumingjum að lifa eins og híenur á mér. Finnst bara allt í lagi að verja mitt og mína fyrst að enginn ( og þá meina ég Lögreglan í Reykjavík) ætlar ekki að gera neitt þegar svona fólk traðkar á mínu.
Nú er ég hætt að predika. Í bili allavega.... hí hí hí hí.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home