föstudagur, júní 24, 2005

Dagur 1 - Vika 1

Jæja nú erum við systurnar að fara að reyna að drepa hvor aðra. Erum í keppni næstu 10 vikurnar eða til 1.sept. Og í hverju?? Jú það er von að þú spyrjir. Í líkamsrækt eða það er að segja við settum okkur ákveðna fituprósentu til að tapa og höfum þennann tíma til þess. Lotta á að missa 3% og ég og Inger 6%. Og fyrir ykkur sem að þekkið okkur ekki þá hefur aldrei skort keppnisskapið hjá nornunum úr Grýtubakkanum (eins og mennirnir okkar kalla okkur með umhyggju og ástúð). Þannig að við erum alveg vísar til að ganga fram af okkur.

Og ekki nóg með það að við ætlum að "hvetja" hvor aðra áfram þá eru verðlaun í boði fyrir þá okkar sem að stendur sig best. Við ætluðum að fastsetja það í ræktinni í morgun en ein af okkur (hóst...Inger...) var eitthvað þreytt og kom ekki - skinkan!

Og þarna var ég í morgun og Lotta pískaði mér út og ég er ekki viss um að ég komist niður tröppurnar hérna í vinnunni til að fara á sumarhátíð hjá Hönnu á eftir. Og hvað þá að ég geti gengið á morgun. Guð sé lof að það er laugardagur.

En hér er markmiðið ( veit - aftur) : Missa 10 kíló og 6% í fitu. Verða skutla og berjast fyrir heimsfriði.

1 Comments:

At 24.6.2005, 10:55, Blogger Great mama said...

Gangið þið nú ekki af hvor annarri dauðri þó keppnisskapið sé mikið.
Þið eruð nú alveg ótrúlegar göróttu systurnar úr Grýtubakkanum (loðir lengi við ykkur að hafa búið þar)
Flott að þú ert farin að blogga aftur. Þá get ég fylgst með hvernig gengur.
Love you - mamma (hin görótta)

 

Skrifa ummæli

<< Home