Dagur 32 – Allt á hornum mér í dag
Þvottavélin bilaði á mánudaginn í síðusustu viku. Þeir voru að klára að gera við hana núna en er ekki viss um að þeir hafi gert við hana (þurrkarinn fór tvisvar til þeirra og það er enn þá skrítið hljóð þegar hann hitnar). Hún nefnilega vatt ekki þvottinn en dældi bæði inn og út vatni og þeir skiptu um dælu. Hmmm???
Mælingin í síðustu viku var bömmer. Allar tölur upp á við (snökt snökt). Vissi alveg upp á mig sökina er ekki búin að vera dugleg að brenna og svo svona afmæli og svoleiðis ólifnaður. Verð að passa mig.
Fór í bakinu á föstudaginn. Og ekkert svoan finn til í bakinu – heldur full on sef ekki fyrir verkjum finn til í bakinu. En ég ætla samt að vera dugleg í ræktinni því að ég er ekki að fara að tapa.
Er búið að vera gott veður í fríinu mínu nema í gær og í morgun en núna er að rofa til þannið að ég sé þig seinna – adios.

3 Comments:
Æææ... Monday, Monday.... Þeir eru svona sumir dagar - þá gengur allt á afturfótunum. En sem betur fer eru þetta bara sumir dagar.
Keep up the good work. Love you !
-Mamma
Hvernig er þetta - ætlarðu ekki að fara að blogga meira? - mamma
Halló - ertu alveg hætt að blogga?
Skrifa ummæli
<< Home