Dagur 5 - Aumingi!!!
Fór ekki í ræktina í morgun. Var að vinna fram eftir nóttu og aulaðist ekki á fætur. Er alveg búin með batteríin en er samt með móral aldarinnar. Sérstaklega þar sem að systur mínar láta mann ekki í friði með þetta. Er aumingi í dag og veit það. Það þýðir aukaferð í ræktina um helgina þ.e.a.s. ef að við förum ekki á Esjuna.
Já, ég sagði Esjuna. Lotta (auðvitað Lotta) stendur fyrir ferð á Esjuna. Förum einhver hópur af stelpum í svo misgóðu ástandi. Ætli Lotta verði ekki með "hvatningarköll" hægri og vinstri. Mér fannst samt ekki annað koma til greina en að fara. Hef aldrei gengið Esjuna. Vonandi kemst ég upp. Kæmist ekki í dag samt. Harðsperrur á harðsperrur ofan - allstaðar. Höndum jafnt sem fótum. Ekki samt í bakinu og maganum, en er viss um að Lotta geti reddað því fyrir mig. Hún örugglega lemur mig bara þeim mun meira áfram.
P.s. Það er ákveðið með verðlaunin. Út að borða og barfyllerí (góð verlaun í heilsuátaki). Og þeir sem að til þekkja vita að við systurnar getum nú alveg drukkið pínulítið ef að þannig liggur við þannig að það er miklu að tapa - alveg sama hvernig við lítum á það.

1 Comments:
Hmmmm.... vertu nú viss um að þú komist líka niður af Esjunni. Það er nefnilega ekki nóg að komast upp! T.d. kæmist ég aldrei niður - lofthræðslan sér um það.
En hef nú ekki áhyggjur af henni hjá þér - bara hvort að harðsperrurnar verða orðnar betri.
Mamma
Skrifa ummæli
<< Home