laugardagur, júní 25, 2005

Dagur 2 - Ááááááaaaaiiiiiiiii

Ég á ekki systur sem að heitir Lotta. Hún er búin að eyðileggja mig algerlega fyrir lífstíð. Er búin að vera með svo miklar harðsperrur í dag að ég er komin með hausverk af overloadinu á heilan að melta öll þessi sársaukaboð. Get ekki gengið eðlilega, ekki sest niður án aðstoðar (klósettið... ...vildi bara að þú fengir visual) og alls, alls ekki gengið niður tröppur. Takk Lotta!

Fór samt áðan að skoða garð við hús sem að til stendur að hanna garðin við. Er í þó nokkrum halla (aftur! áiiii) og ég gekk í kringum húsið og tók myndir. Það var enginn heima (sem að ég vissi) vildi bara sjá aðstæður til að mynda mér einhverja skoðun áður en ég hitti fólkið sem að á heima þarna. Heldurðu ekki að ég hafi séð sálufélaga hans Sigga míns. "Gamli á móti" vék ekki úr bílskúrshurðinni sinni á meðan við vorum að sniglast þarna til að fylgjast með þessu fólki sem að var komið þarna til að taka myndir af húsinu í bak og fyrir. Ég sá alveg minn mann svona eftir einhver 30-40 ár. Þá orðin of gamall til að elta þetta "lið" bara stendur og starir á það þar til það þorir ekki öðru en að hrökklast burt.

En núna er ég strax farin að kvíða fyrir morgundeginum. Hann er alltaf verstur í harðsperrum. Og miðað við hvernig dagurinn í dag er þá: tvöfalt áiiii.

1 Comments:

At 26.6.2005, 13:14, Blogger Great mama said...

Æi - ég sé þig alveg í anda skakklappast þetta. En Helena mín - kapp er berst me forsjá. Mar.. á ekki að gera meira en mar.. getur! En þetta lagast ekki á morgun heldur hinn ;-)

Mamma

 

Skrifa ummæli

<< Home