Dagur 14 - Jibííí og búhúúúúú
Ég fór í fitumælingu og svoleiðis gaman í gær og fékk fínar fréttir. Búin að missa 1 og 1/5 % fitu þótt að ég búin að þyngjast um 1 og 1/2 kg. Á meðan ég er að tapa fitu er mér meira sama um vigtina. Verð að segja það. Verð bara að fara að standa mig aðeins betur í brennsluprógramminu og þá kemur þetta.
Fór í Sportrann í morgun og heim úr vinnu í hádeginu. Fór svona svakalega í bakinu að ég get ekki hreyft mig. Ætli ég verði ekki heima á morgun líka - þetta lítur ekki allt of vel út núna allavega. Kannski verður bara nóg að fara í heitt bað í fyrramálið og lyfja mig vel.
En annars er það að frétta að Inger er að fara á límingunum. Það er auðsjáanlega klikkað að gera hjá henni og við öll hin eigum alveg að þjást með henni. Ekki það að ég hafi ekki samúð Inger mín, en ég vill byrja daginn minn á öðru en rifrildi og öskrum. Vonandi fer hún nú að fá einhvern svefn svo að við hin getum hætt að tippla á tánum.

1 Comments:
Flott hjá þér - en passaðu bakið. Þú ertu nú alveg ótrúlega dugleg að ná þér í gang aftur þegar bakið á þér gefur sig.
Æi - Inger mín þarf að fara að komast í frí.
Skrifa ummæli
<< Home