miðvikudagur, júní 29, 2005

Dagur 6 - Úbbss...

Mamma var eitthvað að tala um lofthræðslu og Esjuna og að fara niður. Er nú farin að efast um þetta allt. Er þetta eitthvað bratt að fara? Ég er alveg logandi lofthrædd þannig að það væri nú félegt ef að konan kæmist ekki niður. Hvað gerir fólk þá? Hringir á lyftuþjónustu? Spurning um að finna númerið og taka það með sér just in case!

Annars fór ég í Sportarann í morgun. Voða dugleg. Það sló aðeins saman með systrum mínum. Báðar harðir naglar og ekki gott þegar þær eru ekki á sömu blaðsíðunni. Eða bara við allar. Inger er nefnilega svona "þjálfari" í ræktinni. Svona að segja til og svona. Og Lottu fannst hún fara aðeins yfir strikið í morgun og fór ekki að leiðbeiningum þannig að Inger öskraði á Lottu í tækjasalnum. Þeir sem að þekkja Lottu vita að svoleiðis útspil fyrir framan fjölda fólks er ekki vinsælt og hún fór í lás. Svo var voða hljótt á restinni af æfingunni og ég þorði ekki að tala - var hrædd um að setja í gang einhverskonar keðjuverkun sem að hefði leitt af sér... ...nú ég veit ekki, einhverjar náttúruhörmungar, það er alveg víst. Það lá bara í loftinu. En svo baðst Inger afsökunar á látunum í klefanum og öll dýrin í skóginum eru vinir aftur áður en farið var í sturtu.

En þetta er örugglega bara byrjunin af einhverju líkamsræktar-sápu ef að ég þekki mitt fólk rétt. Það gerist aldrei neitt í logni hjá okkur. Það er alveg pottþétt að það gerist með látum. Fylgist með next time on... ...the Challenge. Vantar nafn á herlegheitin.

5 Comments:

At 29.6.2005, 10:22, Blogger Great mama said...

Ég myndi hafa með mér síma á Esjuna og hringja svo bara í 112 (ekki 911) og gráta í símann þegar ég kæmist ekki niður. Þá senda þeir örugglega björgunarsveitina. En ekki hringja fyrr en Lotta er farin af stað niður - hún myndi deyja ef hún heyrði þig hringja.
Ég legg til að þið kallið sápuna "The ultimate sister challenge".

Mamma

 
At 29.6.2005, 13:06, Blogger Inger said...

Helena ég sé það að við hefðum átt að bjóða Skjá einum footage af þessu hjá okkur...........

 
At 29.6.2005, 13:22, Blogger Helena Sif said...

Ég var búin að segja það. þetta hefði orðið fínn veruleikaþáttur.

 
At 30.6.2005, 10:56, Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þessi umræða um mig eitthvað komin á skrýtið level. Ég er farin að líta út eins og einhver ógeðslegur harðstjóri kannski eitthvað í áttina að Hitler. Stelpur þið þurfið á einhverjum sem ýtir ykkur smá áfram.

 
At 30.6.2005, 13:12, Anonymous Nafnlaus said...

Vertu ekki svona viðkvæm. Það var ekki þú sem að gargaðir í salnum heldur Inger...

 

Skrifa ummæli

<< Home