Dagur 7 - Duran Duran, here we come...
Í dag er dagurinn. Er að fara að láta æskudraum rætast og fara á tónleika með Duran Duran. Var þeim megin við línuna sem var strikuð með eldi og brennistein þegar ég var 12 ára. Herbergið mitt var veggfóðrað með life size plaggötum af öllum meðlimum hljómsveitarinnar. Fyndið hvernig þetta var. Þú varst annað hvort DD eða Wham. Það var ekkert annað til. Ef að þú sagðir "hvorugt" þá varstu bara ekki búin að finna þig eða eitthvað. Það var eitthvað að. Og maður lagði ekki lag sitt við óvininn. Ef að þú ert DD fólk þá varstu með öðru DD fólki, annað gat skapað allskonar ófyrirsjáanleg vandamál. En það verður gaman að fara með mínum manni á tónleikana og vera 12 ára stelpa að horfa á idolin sín í rúman klukkutíma.
Fór í ræktina í morgun og brenndi á brettinu í 30 mín. Vaknaði svolítið seint en lét mig hafa það samt að fara. Þegar ég kom sá ég stelpurnar hvergi og ég var farin að efast um að þær létu sjá sig. En 12 mín inn í brennsluna mína heyrði ég líka þetta primal öskur. Og allir sem að æfa í Sporthúsinu á morgnana vita hvað það þýðir. Inger er mætt og er að spila skvass og gengur ekki sem skildi. Eftir að hafa teygt pínu í morgun og svo í sturtuna og að klæða sig og svoan varð ég allt í einu rosalega meðvituð (ok, og eftir að Erla spurði hvað við tækjum eiginlega á morgnana áður en við kæmum) um það að það eru allir rosalega hljóðir og svona á morgnana í ræktinni. En það er ekki víst hægt að setja þann stimpil á okkur systurnar. Allavega ekki Inger. Hún kann alveg á þetta, þú skilur.
Viktin var ekki skemmtileg við mig. Hef í alvörunni þyngst. Ég er ekki sátt. Er búin að passa matinn og drekka fullt af vatni og æfa alla vikuna (ok kannski ekki alla en samt...). Þetta gengur ekki með þessu áframhaldi. Veit ekki hvað ég á að gera en þetta er ekki beint uppörvandi. En það er DD dagur... ;-)

2 Comments:
Happy DD day !
Mamma
Takk
Skrifa ummæli
<< Home