miðvikudagur, júlí 13, 2005

Dagur, ó guð eitthvað ....

Jæja. Allavega er miðvikudagur í dag og æfing (eins og alltaf) í morgun. Vaknaði fersk og af stað mætti Lottu inn í klefa sem er eitt og sér óvenjulegt vegna þess að hún er alltaf komin á fullt þegar ég mæti. Hún var nú eitthvað súr í morgun – fór seint að sofa blessunin og það tók aðeins fram á æfingu fyrir hana að vakna.

Annars kom það í ljós af hverju Inger er búin að vera phsyco í nokkrar vikur. Argandi og gargandi með svo stuttan þráð að hann var að verða ósýnilegur. Heldurðu ekki að hún sé svona rosalega járnlítil. Venjulegt fólk á að mælast um 200 en hún er 6. Já ég endurtek 6. Hefði hún skorið sig í puttann hefði það þýtt blóðgjöf. Hún var spurð hvort að hún væri ekki búin að vera þreytt og hún vildi nú ekki kannast við það. Við Lotta könnumst aftur á móti mjög vel við það. Sko að Inger sé þreytt. En Inger verður sem sagt á járnkúr næstu tvo mánuði og batnandi mönnum er best að lifa.

En heldurðu ekki að Inger hafi mætt með myndavél í morgun. Og skellti sér í það að taka svona before myndir. Ég pantaði ekki tíma í þetta. Kl. 7 að morgni til eftir æfingu í æfingatopp og g-string. Not my finest moment. Og svo eins og allir vita þá er ekki til orðið nei hjá Inger. Manni var stillt upp við hvítan vegg og tekin svona “muggshot” mynd af manni - bara á nærfötunum. Vill ekki endurtaka þetta. En bara Inger myndi detta það í hug að vippa upp myndavél í klefunum í Sporthúsinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Stundum held ég að það hafi eitthvað skemmst í ennisblaðinu á henni þegar hún datt af veggnum þarna um árið. Það er stundum eins og stopparinn hennar sé ekki eins virkur og hjá okkur hinum. Og finniði eina manneskju sem ekki er sammála mér í því.

1 Comments:

At 13.7.2005, 13:04, Blogger Great mama said...

Mér þætti gaman að vita hvað er skrafað um ykkur systurnar þarna í Sporthúsinu. Þið eruð örugglega aðalumræðuefnið á ýmsum vinnustöðum, saumaklúbbum, golfklúbbum o.s.frv.
My God eins gott að ég er ekki að æfa með ykkur þarna - gerði ekki annað en að laga uppeldið á ykkur. Og ég sem hef alltaf staðið í þeirri trú að þið væruð svo vel uppaldar! ;-(

 

Skrifa ummæli

<< Home