NYC
Jæja þá er ég nú loksins komin til baka og það liggur svona hitt og þetta mér á brjósti. Þá meina ég að ég vilji tjá mig um eitt og annað en ekki það að það sé beint eitthvað á brjóstunum á mér. Það væri náttúrulega bara beinlínis hættulegt. Það getur nú eitt og annað horfið sporlaust ef að það kemur of nálægt þar.
Nú við skulum bara byrja á byrjuninni. Við stelpurnar fórum til NYC baby (New York City – fyrir þá sem að ekki vita. Við erum búnar að komast að því að það þarf stundum að útskýra þetta). Og þegar ég segi stelpur þá meina ég náttúrulega æðislega hot módel. Read On.
Það var lagt upp í ferð þessa að hádegi á fimmtudegi á Fridays eins og gefur að skilja. Kokkteil og gaman á Fridays er náttúlega bara málið fyrir kvennaferð til útlanda. Þarna vorum við allar mættar sem að ætluðum út. Við systurnar þrjár (Inger, Lotta og Helena siss), Ragna, Þórhildur, Anný og Helena 18. Við fengum búningana frá búninganefndinni (ohh já já – búninganefndinni) sem samanstóð af Hensongalla með logoinu okkar fyrir ferðina og netabol með logoinu og húfu og buff með logoinu (ertu farin að sjá mynstur?). Sissý og Hulda MARÍA komu til að kveðja liðið með tárin í augunum yfir að komast ekki. Sissý að vera ábyrgðarfull ung kona að fara í TOEFL prófið á föstudeginum og ekkert flug þá fyrr en á sunnudeginum. Og svo var lagt í hann.
Þegar við komum á flugvöllinn í NYC þá tók náttúrulega við þessi mugshot meðferð hjá tollvörðum og tekin fingraför og svona. Anný greyið lenti hjá manni á þeim tíma mánaðarins sem að lét hana fylla út pappírana aftur af því hún notaði blýant. Nota bene Helena 18 og fleiri gerðu þetta líka með blýanti en bara Anný var stoppuð. Svo þegar maðurinn tekur af henni fingraför þá bregður honum við og segir að hann hafi nú aldrei á æfi sinni séð svona fingraför. Anný er náttúrulega alveg einstök við vissum það alltaf en að hún sé með öðruvísi fingraför – vá. Hélt einhvernvegin að enginn tvenn væru eins. Er það ekki punkturinn?
Deginum eftir var eytt í Outletti. Farið og verslað og verslað og verslað og... Æi þú skilur. Inger keypti eins og það væru ekki til neinar verslanir á Íslandi og hún fengi aldrei að fara til útlanda aftur. En lætin byrjuðu fyrst þegar við komum á Hótelið aftur. Þar vorum við í mínu Herbergi (ég, Lotta og Þórhildur) að hvíla okkur þegar öskrin bárust úr herberginu fyrir neðan. Og það sem meira var að þeim linnti ekkert. Konu greyið hlaut bara að vera að deyja. Ég fór að glugganum og hlustaði og áttaði mig á því að þetta kæmi úr herberginu sem að hinar stelpurnar voru í. Gulla kom á laugardeginum og Inger systir var að missa sig nema hún var ekki að segja Gulla heldur Sissý. Ég tók nett skekk niður eina hæð og bankaði upp á og viti menn; Sissý og Hulda MARÍA voru mættar á svæðið. (já, eins gott að segja ekki Hulda án MARÍU – þá verður Sissý reið). Þannig að við vorum orðnar 12 á no time. Ó var ég ekki búin að segja – Margrét kom með Hjördísi frá Danmörku á miðvikudeginum. Að vísu þarf hún Margrét alltaf að gera hlutina erfiða og fór krókaleiðina til NY en það er önnur miklu lengri saga. Þannig að við vorum orðnar 12 og til alls vísar. Og Inger hætti loksins að öskra nei garga: Sissý! Sissý! Sissý!
Á laugardagskvöldið fórum við á Tao restaurant. Sem er meiriháttar. Og Inger og co. voru fashionably sein. Bara 45 mín þar sem að borðið þitt er látið burtu eftir 5 mín. En við hinar stigum dansinn til að halda því. Fengum æðislegan mat og geggjaða kokkteila. Fullt af geggjuðum kokkteilum. Þá var gripið næsti limmó fyrir utan. Ekki alveg nógu stór og limmóbílstjórinn hét Elvis. Já, er ekki að grínast við fundum Elvis í USAinu, hann að vísu var jafn mikið USAingur og ég en það er sama. Eftir að maðurinn var búin að berjast við mann og annan til að fá að skutla okkur (ja, eða allavega einn mann - er ekki að grínast) var haldið af stað og Elvis sagði að við ættum að fara í kjöthverfið til að djamma. Auaðvitað, en ekki hvað? Mmmm lambakjöt. Og hann skutlaði okkur í Meat Packing District til að djamma og við fórum inn á fyrsta staðinn sem að við fundum sem var ekki röð fyrir utan. Fannst svona eins og ég væri á Amsterdam í miðbæ Reykjavíkur. Ojj. Pöntuðum okkur skot til að undirbúa okkur fyrir röðina inn á skemmtistað. Hefðum alveg eins getað fengið okkur gos þetta var svo mikið vatn. Með það var minn "nennir" búinn en stelpurnar flestar fóru í fjörið. Inger reddaði liðinu náttúrulega inn á staðinn fram fyrir röð. Því að eins og allir vita eru raðir fyrir loosera, eða það segir Inger.
Þegar inn var komið voru þetta fríða föruneyti spurðar hvort að þær væru einhver módelsamtök. Já, þegar hér er komið við sögu spurði ég þær líka hvort að einhver hefði verið að grínast í þeim en nei. Þær voru spurðar í fúlustu alvöru enda eðal eintök af íslensku kvennfólki. On with the show. Og þarna voru þessar elskur að tala við menn og aðra og alveg að fara á kostum. Inger er komin með einn upp á arminn í hörkusamræður þegar Helena 18 ákveður að skella sér í málið og segir við Inger greyið hvort að hún vilji ekki bara bjóða manninum í threesome á hótelið. Ok. Hugsaðu nú málið. Hvað gæti útlendingur skilið af þessari setningu? Og Inger lítur á manninn og hann leit út eins og lítill strákur sem er að fara að fá að opna stóra pakkann á jólunum. Æi greyið. Og eftir það voru sett ströng skilyrði að bjóða bara í trekant á gistiheimilið.
Og svona ef að þú varst að velta því fyrir þér þá fóru Inger og Helena bara einar í rúmið. Eða tvær eða ... æ,þú skilur. Meira á morgun. Því að það er svo miklu meira eftir. Í alvörunni.

1 Comments:
Djísus - þetta hefur sko verið ferð í lagi. Mér finnst þú eigir að setja logoið ykkar inn á bloggið og svo eins og eina eða tvær myndir.
Bara svo að mamma geti tekið þetta út. En sé ykkur í anda og tala nú ekki um hana yngstu systur þína sem labbar fram fyrir raðir á skemmtistöðum, meira segja í NYC og þykir það nú ekkert tiltökumál. Og kemst upp með það.
Mamma
Skrifa ummæli
<< Home