föstudagur, september 09, 2005

Jæja komin aftur...

...erftir átak. Gekk ekki alveg eins og ég ætlaði að það gengi en er ekkert að fara að gefast upp neitt. Var ekki nógu dugleg í mataræðinu - sérstaklega ekki í lokinn. Er nefnilega búin að vera í smá framkvæmdum heima. Þannig er að við ákváðum loksins að láta vera að því og taka eldhúsið í gegn. Henda gömlu innréttingunni út og setja nýja. Sound simple!!! Ekki þegar Sigurður hrekkur í gírinn.

Hann Siggi minn er nefnilega einn sá smámunasamasti og mesti perfectionisti sem að fyrirfinnst á jörðunni. (Ekki að það sjáist á umgenginni heima en...) Hann var heima að rífa og svona á meðan var ég að vinna.
Dagur 1: Ég fór að vinna kom heim og það var ekkert búið að gerast (þeir sem þekkja manninn minn vita alveg að þetta er ekkert skrítið).
Dagur 2: Ég fór að vinna kom heim og innréttingin í pörtun frá svölunum mínum og út að bílaplani.
Dagur 3: Ég fór að vinna og þegar ég kom heim var búið að rífa allt af veggjunum (málningu - sparsl - og pússningu), líka í BORÐSTOFUNNI.
Dagur 4: Ég fór að vinna og kom heim og veggurinn á milli borðstofu og eldhúss var farinn. Þá þurfti fræsara til að ganga frá málunum.
Dagur 5: Ég kom heim og það voru 1-2 cm þykkar sprungur á veggjunum mínum. Siggi hafði keypt sér fræsara og prófaði hann líka svona svakalega á öllum "skemmdunum".
Og svona gekk þetta í 1 og hálfa viku þangað til ég snappaði og stoppaði minn mann af í smitinu. Hann var orðin eins og vírus hann bara breyddi úr sér. En eftir smá umhugsun sá hann að við eigum enn þá heima þarna og það væri kominn tími til að byggja upp ekki bara brjóta niður.

Eldhúsið. Ég sá fyrir mér að henda gólfefni og innréttingu úr eldhúsi og setja nýja innréttingu en geyma gólfefni þar til við hefðum efni á að taka alla íbúðina í gegn með það að gera. Staðan í dag: Kominn með nýjar flísar á eldhúsið, borðstofuna og ANDYRIÐ. Já, já - vírusinn breyðist.

3 Comments:

At 13.9.2005, 10:09, Blogger Great mama said...

Já hann Siggi þinn er eins og hvirfilbylur þegar hann gengur til verka og eins gott að þú stoppaðir hann. Annars hefðuð þið flutt heim til mömmu á meðan var verið að gera upp ALLA íbúðina! En annars, eldhúsið, borðstofan og andyrið verða megaflott.

Mamma

 
At 21.9.2005, 08:48, Blogger Great mama said...

Hmmm.... ertu komin og farin aftur?

Mamma

 
At 20.10.2005, 10:04, Anonymous Nafnlaus said...

og bara búið !!
á ekki að leyfa manni að fylgjast með ?? jæja ég bíð bara spennt eftir framhaldinu ;-)
kveðja frá danaveldi

 

Skrifa ummæli

<< Home