Gleðilegt nýtt ár allir sem einn
Nú um áramót geri ég það sama og svo margir aðrir sannir íslendingar. Tek saman árangursleysið á seinasta ári og set mér enn þá fjarlægari markmið fyrir nýja árið í formi nýársheita sem að aldrei eru efnd og virðast í fyrstu aðeins vera sett til að skapa sjálfsfyrirlitningu og óöryggi um hver áramót. Það virðist einhvern vegin vera þannig að ef að við strengjum þess ekki heit að verða ofurheilsusamleg og menningalega meðvituð með loforði um að virða náungann og bjarga heiminum svona í hjáverkum, um hver einustu áramót þá erum við að einhverju leiti að lýsa því yfir að við séum búin að gefast upp á okkur sjálfum eða þá sem verra er, allri veröldinni. En þar sem að ég tel mig vera búin að ná masters gráðu í því að falla á mínum eigin nýjársheitum þá ætla ég ekki að strengja ný um þessi áramót. Í staðin ætla ég að reyna að njóta ársins sem fer í hönd. Engar kvaðir um að vera 10 kg léttari um næstu jól eða fara oftar á einhvern menningarviðburðin til að víkka sjóndeildarhringinn. Nei, ég ætla sko ekki að falla í þessa gryfju enn og aftur. Núna í ár ætla ég að njóta ársins.
Það eina sem að ég ætla að lofa sjálfri mér á þessu ári er að gera allt sem að ég gerði ekki í fyrra á fyrstu 2 ½ mánuðinum á þessu ári. Ég ætla að grenna mig um 10 kg fara til New York þar sem að ég ætla að drekka í mig menninguna og eyða gæðatíma með vinkonunum. Kaupa flott föt og verða algerlega ný kona á einni helgi. Koma svo heim með nýja og réttari sýn á veröldina og svona í flugvélinn á leiðinni heim að leysa allan heimsins vanda bara svona á milli JFK og Keflavíkur.
Og því enn og aftur, GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

3 Comments:
He he - gott hjá þér! Flott markmið. Njóttu þín, þú ert yndisleg og ég er stolt af þér.
Mamma
stolt af þér, fyrir færsluna ;-)
annars sjáumst við bara í NYC 10 kílóum léttari !!!
Mess
hott hott - vertu nú dugleg að halda áfram að blogga stelpa!
Skrifa ummæli
<< Home