Fyndnasta Kona Íslands
Fór á Fyndnasti maður Íslands seinasta fimmtudag. Fór nú reyndar öll kvöldin 4 af undanúrslitum en þetta var náttúrulega “The Night”. Inger systir að fara að meika það og ef ekki það þá allavega að feika það. Það var farið og sest á fremsta bekk svo litla systir gæti horft djúpt í augu mér ef hún yrði stressuð. Algerlega litið fram hjá því að hún er svo nærsýn að það hálfa væri miklu meira en nóg og hún sýndi sig án gleraugna á sviðinu.
Annars verð ég nú að segja það að hún stóð sig algerlega eins og hetja þessi elska. Svona líka svakalega fyndin og flott á sviði. Ekki það að hún sé ekki flott bara svona yfir höfuð en sérstaklega flott í spottaranum. Það var náttúrulega algert hneyksli að hún kæmist ekki áfram og eiginlega algerlega nauðsynlegt fyrir jafnréttisráð að skoða þetta mál. Það að fimm karlmenn keppi um stöðuna Fyndnasti Maður Íslands getur náttúrulega ekki verið rétt. Annars vörum við nú algerlega búnar að sjá það út að hún Inger er náttúrulega BARA Fyndnasta KONA Íslands.
Annars var þetta líka furðulegt kvöld í alla staði. Einhver snillingurinn í keppninni spurði hvort kærastan hennar væri með henni. Það átti sem sagt að vera ég. Hann búinn að mæla það út þessi elska að við værum par. Inger var fljót að leiðrétta þetta. Við svæfum nú stundum saman en það væri meira svona sifjaspell.
En svona til heiðurs Inger þá er þetta hvorki né haus né staf og ég kveð í bili.

4 Comments:
Já þetta var kvöldið hennar Inger og hún stóð sig vægast sagt eins og hetja. Síðan fengum við líka áskorun við Helena þannig við erum farnar að æfa okkur fyrir X-factor til að koma Auðunni í dragkeppnina ;)
Nákvæmlega!
æi takk elsku systur, ég verð sko í klappliðinu fyrir ykkur HELL YE......Já og Auðunn líka ;)
Skemmti mér konunglega á fyrsta bekk með ykkur systrunum að horfa á örverpið mitt brillera á sviðinu í Austurbæ. Hún hefði átt að vinna þetta kvöld! Ég mæti sko líka þegar þið tvær rúllið upp X-factor! - luv jú all - mamma
Skrifa ummæli
<< Home