mánudagur, nóvember 27, 2006

Jólin og Jackson 5

Jæja núna eru jólin á næsta leiti og ekkert nema gott um það að segja. Stefnan er tekin á róleg jól og stressfrí að öllu leiti. Hef samt ekki enn þá náð því markmiði sama hvað ég reyni. Kannski er það málið. Ég reyni kannski allt of mikið að gera þennan tíma að einhverju. Í ár er þetta að stefna í aðeins betra ástand. Við systurnar ætlum að klára allar jólagjafirnar í vikunni og ég er nú þegar búin að versla jólafötin á krakkana. Eina jólagjöfin sem að ég á eftir að ákveða er handa Sigga. Alltaf svolítið erfiður. Annars er allt komið. Veit hvað ég verð með í jólamatinn og ætla líka að klára það snemma. Svo held ég að þetta árið fari ég að ráðum Lottu systir og skreyti tréð nokkrum dögum fyrir jól. Það er einfaldlega allt of mikið sem að er á listanum á Þorlákmessu. Skil ekki hvernig hún mamma gerði þetta ein með okkur 3 systurnar.

Mér finnst jólin ekki byrja kl.18 á aðfangadag heldur þegar ég vakna um morguninn. Ég kenni mömmu algerlega um þetta. Þannig er að mamma kann sko að gera jólin fullkomin. Við systurnar fengum alltaf að skreyta jólatréð á þorlák svo kom baðið og farið í jólanærfötin og jólanærfötin hvoru tveggja glænýtt. Svo var skriðið upp í rúm sem var líka með glænýjum sængurverum á. En þegar maður vaknaði þá var dagurinn stóri og fullkomni byrjaður. Mamma var búin að gera allt. Tréð fallegt með öllum pökkunum undir og heimabakað smákökur á borðunum. Allt tandurhreint og ilmandi og friður og ró yfir öllu. Svo var hann Kertasnýkir líka með allt á hreinu og gaf okkur systrunum eitthvað skemmtilegt að gera yfir daginn, spil eða litabók eða einhverja góða bók að lesa. Skemmtilegast fannst mér samt það að mamma vann aldrei á aðfangadag. Og hún var aldrei á fullu að gera eitthvað heima. Bara kúrði með okkur í sófanum að horfa á barnaefnið og borða smákökur. Og það voru óskrifuð lög að maður fór aldrei úr náttkjólunum fyrr en við fórum í jólafötin. Svo voru náttúrulega enginn jól á mínu heimili nema að Jackson 5 jólaplatan væri spiluð í hengla get alveg sagt ykkur það að það er ekki til sú jólaplata sem að við mæðgurnar kunnum betur eða syngjum hærra með heldur en Jackson 5 jólaplatan.

Mér finnst líka svo skemmtilegt að hugsa til þessa dags í barnsminningunni sem aflappaðs friðardags þegar raunin var svo allt önnur – allavega fyrir mömmu. Hún var alveg pottþétt sveitt fram undir morgun að gera allt klárt fyrir aðfangadagsmorguninn. Svaf örugglega ekki nema í 2 tíma áður en skæruliðarnir komu í skýjunum upp í rúm til hennar uppfullir af orku og tilhlökkun með fyrsta pakka dagsins. Svo var að vísu pása svona fram eftir degi eða þar til að þurfti að koma mannskapnum í fötin. Þegar það verk hafðist tók við að setja pakkana sem að hún hafði aðeins örfáum klukkutímum áður sett undir tréð, í poka til að koma öllu dótinu og þremur dætrum sínum í Skoda Rappit og svo að skrölta með allt í gegnum borgina til ömmu og afa í Kleppó. Þá bjó mamma til bastu sósuna í bænum og við borðuðum og opnuðum pakkana. Þá var öllu pakkað aftur í bílinn og ef þið haldið að mamma greyið hafi þá komist heim til sín þá skjátlast ykkur. Nei þá var dröslast upp í Mosfells sveit nánar tiltekið Markholtið til afa og ömmu í Mosó. Þar biðu fleiri pakkar og gaman. Eftir Malt og appelsín og enn fleiri smákökur var loksins haldið heim á leið þar sem að litlu dýrin skriðu í bólið en mamma fékk að ganga frá. Og þennan dag gerði hún mamma mín alltaf að yndislegasta deginum á öllu árinu. Alltaf eins og alltaf jafn spennandi og alltaf, alltaf fullkominn.


Takk mamma

4 Comments:

At 27.11.2006, 10:11, Anonymous Nafnlaus said...

Yndisleg ertu elskan mín - og best að öllu að þið skuluð hafa upplifað jólin ykkar svona. Ég ólst upp við þetta og ég er sko alveg hundviss um að börnin ykkar systranna upplifa þetta líka. Þetta eru jólin ykkar og efa ekki að þið gerið þau líka svona.
Það var ekki svo mikið mál að gera þetta allt - maður bara gerði það og með glöðu geði. Ég þurfti hvort sem er að sofa svo skolli lítið á þeim árum.
Í minningunni minni eru jólin okkar mæðgnanna ákkúrat svona. Falleg og fjölskylduvæn.
Eslka ykkur allar út af lífinu og barnabörnin mín líka. Þið eruð stolt mitt og yndi.
Mamma

 
At 27.11.2006, 15:02, Blogger Inger said...

Já ég segi ekki annað en takk mamma, þetta er nákvæmlega eins og ég myndi lýsa því :)

 
At 1.12.2006, 08:36, Anonymous Nafnlaus said...

Hu hummmm.... það má alveg blogga meira :-)
Ástarkveðja, mamma

 
At 9.12.2006, 09:28, Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er alveg eins og ég hefði orðað það. Og þetta er einmitt eins og ég reyni að hafa jólin fyrir mín börn. Takk besta mamma

 

Skrifa ummæli

<< Home