miðvikudagur, júní 21, 2006

Flugvellir og ferðalög

Góðan daginn gott fólk.

Var að koma frá Spáni og það var æðislegt. Aðeins of heitt seinustu tvo dagana 32°c+ en bara gaman. Við fórum til Lottu systir rétt sunnan við Torrevieja í sumarhús, ef hús skildi kalla. Þetta er meira svona villa. Allavega stórt hús. Vorum hele familían í eina viku og gerðum alveg fullt. En við erum búin að komast að því að flugvellir og við eigum ekki saman. Byrjum þá söguna:

Keflavíkurvöllur á leiðinni út:
Við hendumst af stað því eins og allir sem til þekkja vita þá erum við alltaf á seinasta snúning sérstaklega þegar maðurinn minn þarf að skreppa aðeins rétt áður en við förum. Flug kl 16:15 og kl orðin eitt. Og það á eftir að stoppa við hjá mömmu og ná í dót og skutla lyklum til pabba. Einhver þarf að gefa hömstrunum annars verður þetta miður skemmtileg ferð fyrir börnin. Allavega við þeysumst af stað. Siggi að rembast við að vera á undan rútunni var ekki alveg að hlusta sína konu með það að það væru rútur á 30 mín fresti á þessum tíma dags vegna þess að það væru fullt af vélum að fara út. Þannig að við förum í einhverskonar keppni við rútuna. Komum upp á völl og fjölskyldan hendist út í grenjandi rigningu og ég skutlast með bílinn á langtímastæðið á meðan Siggi og co fara inn til að bíða í röðinni. Ég fæ náttúrulega frábært stæði. Alveg eins langt frá ganginum inn á flugstöð eins og hægt var og úrhellisrigning og bíllinn stóð í 10 cm djúpum poll. En ég er að fara til útlanda! Rennandi blaut eða ekki samt gaman kem inn á flugstöð og OMG röðin er ekkert smá löng og Siggi minn næst aftastur. Og svo skríður þetta áfram – verið að tékka inn á 4 borðum fyrir 5 vélar frá Iceland express en á öllum hinum fyrir álíka margar frá Flugleiðum. Svo komum við inn og þar stendur confirmed 16:15 og við hendumst á fleygiferð í gegnum fríhöfnina til að ná að kaupa allt áður en þeir kalla inn í vél. Búin – lít á skjáinn og þá stendur estimated 20:00. Tuttugu!!! Seinkun á öllum vélum Express. Kl. 16:30 var enginn tilkynning komin frá Express og enginn á svæðið til að útskýra hvað gengi á og allir orðnir verulega pirraðir. Svo kemur loksins tilkynning. Bla bla bla bla blabla fáið að borða kl 18. Ég ákveð að borða og kíkja svo aftur almennilega á snyrtivörurnar eftir mat. En nei. Þeir loka öllu í fríhöfninni kl.18. Bara sorrý lok lok og læs. En til Spánar förum við.

Aeropuerto Alicante:
Komin. Loksins. Finnum töskur, bílaleiguna en engan bílstól fyrir Hönnu. If you had arrived at eleven a clock like the reservation says it would have been no problem but.... F*** it - af stað. Upp með útprentunina af Micheline síðunni. Bæði texti og myndir og ekkert mál að rata þetta. En það sem að stendur ekki á pappírunum er að leiðarvísirinn miðast út frá því að sleppa við tvö vegtollahlið þar sem að tollurinn er 2,85 evrur. Sem eins og allir vita skiptir gríðarlega miklu máli að spara kl 3 um hánótt á stað sem að maður þekkir ekki neitt. Og eftir allt of margar beygjur og hlykki þá varð að kalla út hjálparsveitina í formi Stjána með GPS tæki til að bjarga okkur. BTW – þegar við svo á næstu dögum sáum hversu auðvelt það er að keyra þessa leið þá leið okkur báðum eins og ösnum.

Aeropuerto Alicante leiðin heim:
Komum á staðinn og finnum ekki bensínstöð til að fylla drusluna. Finnum ekki svo aðkeyrsluna að AVIS bílastæðunum. Komum okkur inn og það er rænt af Sigga Ray-Ban gleraugunum (sem að við vorum að kaupa úti) á meðan við erum að tékka okkur inn ásamt fleira drasli. Þegar við svo loksins komum inn þá er auðvitað verið að loka öllu á flugvellinum. En ekki hvað? Við með svöng börn og ekkert að borða. Hvað næst? Ábending: Aldrei –aldrei spyrja svona.

Keflavíkurvöllur komin heim:
Lendum förum í gegnum tollhliðið án þess að vera tékkuð og gegnumlýs í fyrsta skipti ever. Við erum þetta fólk sem erum alltaf skoðuð. En auðsjáanlega að börnin eru gagnleg í eitthvað. Siggi fer út að finna bílinn. Ég segi finna vegna þess að í hamaganginum þegar við komum á völlinn hafði ég ekki vit á því að leggja á minnið hvar ég lagði bílnum. Svo eftir allt of langa stund kl 3 um nótt á kalda Íslandi kemur minn maður af bílastæðinu... ...gangandi. Konan hafði ekki lokað afturhurðinni nægilega vel og bíllinn alveg dauður. Og náttúrulega enginn við á stæðinu. Þegar loksins var búið að fá start (eftir að ég reyndi að ÝTA bílnum í gang) vorum við seinust úr stöðinni. Og vitið menn Siggi keyrir í alvörunni á löglegum hraða heim. Og þá stekkur löggumann auðvitað fram og vill að hann blási. Hann stenst prófið og heim. Þar er önnur lögga sem að eltir okkur upp að dyrum. Stoppar bílinn og fylgist með okkur þar til að þeir sjá börnin með en ekki bara fólk með stórar töskur. Og ég verð að viðurkenna það að ég er að verða pínu pirruð á þessari afskiptasemi. Upp með drasl börn og allt og Siggi stekkur út á bensínstöð eftir mjólk. Kemur ekki fyrr en seint og síðarmeir. Því að hann hittir löggimann og hann segir að það hafi verið innbrot í hverfinu áðan og þeir séu að eltast við liðið um allt hverfi. Og allir sem að þekkja Sigga vita hvað hann gerir í þessum aðstæðum. Hann fer að leita líka. Og fann og lét lögguna vita sem handtók liðið. Og ég fór að sofa.

2 Comments:

At 26.6.2006, 11:35, Anonymous Nafnlaus said...

Allamalla! Þetta er sko ferðasaga í lagi. Sé ykkur í anda þegar þið komuð heim og bíllinn dauður og þú að ýta! Svo ekki sé talað um að Siggi fari að eltast við ræningja um allt hverfi eftir að komið var heim með börnin um miðja nótt og hann sendur út að kaupa mjólk. Þið eruð óborganleg. Væri hægt að nota ykkar ferðalag í góða gamanmynd. - Mamma

 
At 26.6.2006, 13:09, Anonymous Nafnlaus said...

Nákvæmlega!

 

Skrifa ummæli

<< Home