Long time no see...
Það er það að frétta að Inger, litla barnið í hópnum, er flogið úr hreiðrinu. Þá meina ég úr höfuðborgarhreiðrinu. Hún er farin til austurlanda fjær og ætlar að setjast þar að í allavega 2 ár. Og hvaða austurlönd er ég að tala um? Það er von þú spyrjir, en það eru nefnilega Reyðarfjörður. Já, ég er ekki að grínast - Reyðarfjörður. Þar sem að íbúafjöldin er 650 manns og Inger ætlar sem sagt að bæta alveg 4 við. Inger hittir venjulega svona um 650 manns á degi hverjum sem að hún þekkir og ætlar hún núna að láta sér duga bærinn á Reyðarfirði.
Þessi elska lagði í hann á föstudaginn. Var komin upp á Rauðavatn þegar hún hringdi í Lottu til að kveðja og Lotta sagði; stopp, ég fer með. Inger þangað til að sækja hana og Lotta hringdi í mig. Ég sagði; stopp, ég fer með. Og án nokkurs fyrirvara var flutningur Inger orðið að roadtrip. Systurnar 3 one last time áður en að litla trippið skemmir allt. Og austur á leið stauluðumst við saman og það var eins gott því að Inger er ekki sleip á kortum. Komst að því og hún væri örugglega bara á Höfn í Hornafirði ef að við hefðum ekki komið með tuðandi í einhverjum ; "jú, jú þetta er Reyðarfjörður, ég veit það vegna þess að ég hef keyrt þetta áður. Var að vísu ekki ökumaðurinn og svaf svolítið á leiðinni en samt.". Og ekki er Lotta betri. Öxi eða ekki öxi hmmm. Tölum ekki um það.
Við sáum hreindýr á leiðinni (já, svona alvöru en ekki svona eins og eru í bænum) og eina túristastoppið sem að var tekið var í Jökulsárlóni. Rosalega er það fallegt. Á leiðinni heyrðist eitthvað frá Lottu á þá leið að ef að hún hefði farið þetta þá hefði hún nú þurft að fara þetta ein og upp hófst eitthvað þras um það. Fannst mér þetta fyndið af því að það vita allir sem þekkja okkur að ef að svo hefði verið þá hefði Inger farið með henni en ef að ég hefði farið þá hefði enginn farið með mér. Þær reyndu að klóra í bakkann með einhverri vitleysu um að þær myndu sko alveg treysta mér fyrir að koma mér á leiðarenda bla bla bla ... Svo þegar við vorum búnar að skila Inger á réttan stað og taka út place-ið og gistiheimilið á Eskifirði þá flugum við Lotta heim aftur í menninguna og prísuðum okkur sæla. Ekki er þetta fyrir mig en vonandi verða þau ánægð.
Meira seinna.

2 Comments:
Já - Jökulsárlón er ægifagurt! En það skilur það enginn nema ég og nokkrir sem eru ykkur mjög nákomnir, hvernig stendur á því að það er ósköp eðlilegt að þú og Lotta bara hlaupið úr vinnu til að fylgja Inger austur á land. Mér finnst þetta bara eðliegasti hlutur í heimi - en nokkrir haft það á orði við mig að þetta sé nú svolítið undarlegt. Það fólk bara þekki ekki Grýtubakkasysturnar.
Og vitandi vits, þegar þið villtust á leiðinni á Þingvöll um árið, þá er sko eins gott að þið séuð þrjár saman á ferð - þið getið þá allavega týnst saman og skemmt hvor annari á meðan.
Mamma
Hver er svo skilningssljór að skilja það ekki að maður er nú ekki sendur einn til austurlanda fjær þegar maður er ljóshærður og bláeygður? Vill fólk ekki bara stilla henni upp við vegg og skjóta hana strax?
Skrifa ummæli
<< Home