Páskafrí og mamma
Jæja nú er loksins komið að páskafríinu. Enginn ferming bara eitt afmæli. Lilli minn að verða 10 ára. Já, ótrúlegt en satt þá á ég 10 ára gamalt barn. Við ætlum nú bara að hittast fjölskyldan annað kvöld og ég ætla að grilla fyrir liðið. Svo verður fjörið á fimmtudaginn næsta. Þá koma skæruliðarnir úr bekknum hans. 12 stykki allir til í stuð og gaman. Úff verð bara þreytt á því að hugsa um það. Verð að finna einhverja leiki til að henda þeim í til að allt verði ekki vitlaust. Maður verður nefnilega að hafa svona skipulagt gaman en ekki bara gaman.
Annars verð ég nú að segja frá einu skemmtilegu sem að hún mamma gerði í morgun. Þannig er að ég sendi henni mynd af barnabörnunum sem var tekin á Þingvöllum í seinasta mánuði. Voðalega menningaleg mynd bara svona smá sönnunargagn að ég hefði jú, farið með börnin mín að ganga Almannagjá og kíkja í peningagjá og svona. Svo msn-ar mamma á mig “Hvaða typpamyndir eru þetta líka?”. Ég fór alveg í mínus. Skildi ekkert hvað hún móðir mín var að fara núna. Og hún sagði að jú, jú það væru sko typpamyndir með ömmubarnamyndunum hjá henni. Að hún hefði sko bara ýtt á örvarnar fyrir neðan myndina og þá hefðu sko komið upp einhverjar typpamyndir. Engar rosalega dónalegar en samt myndir af typpum. Ég kíkti á þetta hjá mér í útsendum pósti og sá engar örvar. Hugsaði í augnablik hvort að einhver vírus væri komið í kerfið sem að sendi svona dónamyndir með viðhengjunum. Guð, hvað ég var fegin að ég hafði bara sent þetta á mömmu en ekki á einhvern kúnna. T.d hjá Landsneti eða eitthvað. Svo á leiðinni inn til kerfisfræðingsins hérna í vinnunni ákvað ég að snúa við og fá betri upplýsingar hjá mömmu bara svona til að geta frætt hann betur um þessa gríðarlegu ógn sem að fyrirtækinu stefndi. Og mamma mín, þessi elska, sagði mér að hún væri að skoða þetta í Microsoft Picture and fax Viewer og að það væru svona örvar neðst á skjánum sem að hún hefði ýtt á og þá hefðu komið þessar typpamyndir. Og þá var ég allt í einu rosalega fegin því að hafa ekki talað við kerfisfræðinginn okkar því að þessar hrikalegu myndir voru náttúrulega bara leifar af einhverju sem að hún mamma hafði fengið sent á maili og opnað einhverju áður. Auðsjáanlega fær hún svona myndir það oft að það festist ekki einu sinni í minninu á henni. Sem er auðvitað meira en nokkur manneskja þarf að fá að vita um móður sína. En ég er svo fegin því að atburðarrásin mín megin hefði verið mun óþægilegri ef ég hefði talað við kerfiskallin hér. Sé þetta alveg fyrir mér. “Ummm, mamma mín sér typpi í tölvunni sinni og hún heldur að ég hafi sent sér þau. Geturðu hjálpað mér?” Úff, slapp fyrir hornið á þessum fíl.

5 Comments:
Já hún móðir okkar er svo bara klámhundur þegar allt kemur til alls.
híhíhí...... hlakka til að lesa meira
Ha...hmmmmm....sko.... - þetta er eitthvað sem ég skil bara ekki (geislabaugurinn kominn upp og alles)! Þetta unga fólk hér í vinnunni er alltaf að senda eitthvað á milli og það slæðist ýmislegt til mín líka.
:-< Mamma
hva á ekkert að fara að blogga hérna.............
Jú - þetta er að koma
Halló! Blogga meira.
Skrifa ummæli
<< Home