Eric að fara á fyrsta stórmótið sitt í fótbolta og ekki seinna vænna...
Hann sonur minn þessi elska fór á sína fyrstu æfingu í fótbolta í gær og kom heim með það að hann fengi að fara með á Shell mótið ef að ég leyfði. Eftir langa umhugsun (sem varð að fara fram á met tíma) þá var ákveðið að taka lítið lán til að fjármagna ferðina (það er svolítið erfitt að selja klósettpappír fyrir ferð til eyja á sólahring). Þannig að minn maður er að fara í fyrramálið og kemur ekki heim fyrr en á sunnudagskvöld með flugi. EN þótt að þetta sé stuttur fyrirvari var ekki hægt að neita honum um þetta þar sem að hann er á eldri árgangi á pollamótinu núna svo að það verður ekkert næsta ár með það að gera. En svo eftir allt panikið við að ákveða þetta þá er mamman með smá í maganum yfir að senda hann. Vinur hans fer líka og pabbi hans verður á staðnum þannig að ég er með eftirlitsmann. Svo eru vinsamleg tilmæli um að við heimaforeldrar séum ekki að "trufla" börnin mikið á meðan þau eru í eyjum. Allt í lagi að senda sms og skrifa í dagbókina á heimasíðunni en ekki mikið meira en það. Og hana nú. Barnið mitt er að fara frá mér. Litla litla barnið mitt aleitt í útlöndum. Nei taktu þig saman í andlitinu kona.
P.s Það gleymdist eitt atriði með heimkomuna frá útlöndum. Þegar ég kom inn var risastór pollur við frystihólfið á ísskápnum mínum. Þegar betur var að gáð var rafmagnið farið af eldhúsinu og ..... Gaman. Pabbi að ryksuga svona rétt áður en við komum aftur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home