Mánudagur á fimmtudegi
Jæja það á nú að heita að það sé fimmtudagur í dag en fyrir mér er þetta svona líka típískur mánudagur. Byrjaði á því að vakna svona venjulegum klukkutíma of seint og allir rosalega þreyttir. Siggi finnur náttúrulega ekki neitt nema fyrsta gírinn á góðum degi svona fyrst á morgnana en í dag hafði hann ekki hugmynd um það hvar gírstöngin var einu sinni. Svo segir minn bara “ ég þarf að fara með bílinn í viðgerð” og eftir sit ég með úrillt 7 ára gamalt barn sem er ekki á því að láta segja sér hvað það á að gera og hvað þá hversu hratt svona fyrst á morgnana.
Svo þegar Hanna var komin í föt og búin að borða og ég búin að greiða henni með tilheyrandi “nei”, “af hverju?” og við skulum ekki gleyma “ha???”, þá var farið í að taka til í töskuna aukaföt og nesti og svona. Allt orðið til nema að regngallinn fannst hvergi. Ég var búin að leita út um allt. Allsstaðar. Þegar við vöknuðum klukkutíma of seint til að byrja með. Pirringurinn var ekki á mælanlega skalanum hann var LÖNGU búin að sprengja hann. Þá skellum við okkur bara samt af stað. Hann hlýtur að vera í bílnum. Nei! Ekki þar. Hringt í Sigga – helv... hann er örugglega með hann í bílnum. Nei, ekki þar. Var farið að líða eins og í lélegri barnabók. Hvar er regngallinn? Er hann undir rúmi? Nei, ekki þar.... EN úlpan er með og Hanna á leikjanámskeið. Komin inn þar og þá – NEI. Er með sundfötin fyrir hana en taskan með aukafötum og nestinu er heima. Auðvitað en ekki hvað?
Heim. Inn. Kíkja inn í skápinn hennar – kannski er gallinn þar. JÁ!!! Út. Hmmm? Inn –taskan. Út aftur. Leikjanámskeiðið aftur inn með dótið og af stað í vinnu. Mætt á líka þetta eðlilegum tíma... ...kl.10:00.
Já og góða Verslunarmannahelgi... ... í rigningunni.

3 Comments:
Stundum ætti maður ekki að fara á fætur. Þetta hefur sko verið algjör "Murphy's law" dagur. Ef það mögulega gat farið úrskeiðis, þá gerði það það.
ahahah....Murphy´s law!!!!! mitt líf þessa dagana er Murphy´s law :)
Nú er fimmtudagur og er þá bloggað að nýju á morgun?
Ástarkveðja - mamma
Skrifa ummæli
<< Home