Shellmótið - brottfarardagur
Jæja þá er frumburðurinn farinn. Fékk nú nett í magan að horfa á eftir honum en þetta verður æðislegt. Pakkaði örugglega allt of mikið með honum. Og sá sem að setti saman þennan lista yfir búnaðinn með þeim og setti síðan það sem leiðbeiningar að allt ætti að fara í eina tösku er pottþétt karlmaður. Bara það að fara með innanhússkó, takkaskó, stígvél, vindsæng, úlpu og svefnpoka sér að það kæmist ekki í eina tösku hvað þá með aukafötum og dóti. En þetta hafðist - að vísu með svefnpokan sér. Þetta verður örugglega voðalega gaman.
Setti inn link á síðuna fyrir Shellmótið hérna til hliðar.

2 Comments:
Til hamingju með afmælið í dag
Vonandi að þú hafir það gott og fáir fullt af knúsum og kossum :)
við sendum faðmlög ,blauta kossa og kærleik
Margrét, Elli og AA
Halló! Blogga takk.
Mamma
Skrifa ummæli
<< Home