Annáll og áramótaheit
Jæja. Maður ætti kannski að staldra aðeins við og líta yfir farinn veg núna þegar nýtt ár gengur í garð og boðar nýja og ferska byrjun. Ég veit samt ekki. Stundum getur það bara verið niðurdrepandi og beinlínis hættulegt viðvarandi geðheilsu og steypt manni niður ísilagða brekku í átt að geðheilsuleysi. En við skulum nú samt láta á þetta reyna.
Það er nú svo sem ekki frá mörgu að segja. Ég er enn vinnandi á sama staðnum. Var nú bara þreytt á öllum þessum fluttningum hjá henni Inger systir þannig að ég prísaði mig sæla að ganga bara að minni vinnu vísri á sínum stað. Ég meina ég er í fullri vinnu við að endurforrita símanúmerin hennar Inger í GSMinum án þess að ég flæki málið frekar með því að þurfa að rifja það upp hvert ég er að fara á morgnana. Svo varð ég fljótlega ólétt. Já, nei ekki ég heldur Lotta systir. En líkaminn minn var ekki með þetta alveg á hreinu og tók óþarflega mikinn þátt í þessu hjá henni. Ógleði, aum brjóst, þyngdaraukning, þreyta og svefnleysi eru bara smá partur af því sem að ég gekk í gegnum næstu mánuði. Og svo fékk hún barnið og ég hmm... ...öll aukakílóin.

Ég á líka bara heima á sama gamla staðnum á meðan systurnar tvær fóru að byggja og önnur þurfti að fá sér tvær lóðir. Af hinum systkynunum er það að frétta að Doddi er að fara aftur í skóla og lítur ekkert smá vel út. Alger moli. Og Bjarni skipti í FH yfir í Stjörnuna. Ætlar að fara að slá í gegn og er jafnvel með annað augað á útlöndum.
Ferðaðist svolítið á árinu, það er það jákvæða. Við stelpurnar í Survivor fórum til NYC. Æðisleg borg og langar ekkert smá að fara aftur. Það var í mars. Svo í júní fórum við Siggi með börnin í viku til Spánar. Keyrðum mikið og mikið skoðað. Svo tók konan þessu bara rólega þangað til í nóvember. Þá fór vinnan til Rómar. Væri alveg til í að búa þar í einhvern tíma. Svo fórum við Siggi með krakkana í okkar árlegu ferð í bústað. Fórum náttúrulega þegar mesta óveðrið á árinu gekk yfir en drösluðumst samt að skoða Gullfoss og Geysi. Höfum aldrei verið eins blaut og köld og sæl, allt í einu.
Hannes gerði aldeilis urslan á árinu. Hann fór að taka Herbalife og fljótlega fóru þingmenn og konur að finna fyrir honum. Tvöföldun Suðurlandsvegar var á dagskrá og ekkert myndi stöðva hann. Á örfáum dögum var þetta komið í fréttirnar og fullt af fólki komið til að hjálpa að reysa krossa til minningar um þá sem að látist hafa við veginn. Hanna Karen var annarri hverri síðu blaðanna og á netinu við hlið afa síns og orðin alger stjarna.
Eins og áður hefur komið fram þá hefur árið ekki verið gott líkamlega séð. Það vill gerast þegar maður æfir ekkert. Kom inn á árið 2006 með dágott af aukadrasli og gekk út af því með ýfið meira. O.k. miklu meira. Þolið er ekkert og OMG draslið sem að ég er með utaná mér. Ojjj.
Og svo endaði ég árið á því að fá flensu aldarinnar 22 des og náði mér ekki fyrr en eftir áramót. Og nota bene með aðstoð pensilíns. Þannig að ég tek fagnandi á móti 2007. Það getur mögulega ekki orðið verra en 2006. Ja, það var kannski ekki svo slæmt bara ekkert spes heldur. En þar verður breyting á.

Þannig er að mín áramótaheit eru eftirfarandi:
1. Ég ætla að hreyfa mig. Ég meina ég þarf nú ekki að gera mikið til að vera bót frá fyrra ári. Ég þarf bara að labba út í búð einu sinni á viku og þá slæ ég metið. En ég stefni nú aðeins hærra. Ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt. Er að spá í að prufa fimleika og svo er verið að skoða að fara í dans til Evu Rósar frænku.
2. Svo er það ættingjar. Þetta er ekki nógu gott. Fór nú oftar til ömmu á seinasta ári en oft áður en betur má ef duga skal. Ætla að sinna þeim betur. Hef fengið góða áminningu í fjölskyldunni hans Sigga nýverið að enginn er eylífur sama á hvaða aldri hann er og ætla ekki að taka morgundaginn sem sjálfsagðan hlut meir.
3. Vera jákvæðari. Hefur orðið ágegnt með það á seinasta ári en ætla að gera betur. Segja frekar “ég get” og “ætla” heldur en “ætli ég geti” eða “kannski seinna”. Svo vill ég líka bara njóta lífsins betur heldur en ég hef gert árum saman. Uppgötvaði að það að fara með börnin mín að ganga Almannagjá á ferskum vormorgni er það yndislegasta sem til er.
4. Talandi um það. Fara miklu miklu minna í þessar verslunarmiðstöðvar og reyna frekar að gera eitthvað uppbyggilegra með krökkunum. Það eru margir staðir hér rétt í kring sem að eru yndislegir að fara á og margt hægt að gera sem að örvar þau í stað þess að drepa þau úr laiðindum.
5. Ó, já. Svo er það hin áramótaheitin sem að skipta minna máli en eru samt svo skemmtileg þegar maður lítur til baka yfir árið á allt það sem að maður gerði ekki. Léttast um 15 kíló, eignast nýjan bíl, nýtt hús, selja málverk, já og verða kosin maður ársins.

1 Comments:
Super markmið!
Skrifa ummæli
<< Home