Ekki góður dagur
Er eitthvað utan við mig í dag. Gæti verið vegna þess að ég var ekki að brillera í dansi í gær. Fór í bakinu eina ferðina enn og er að drepast í úlnliðnum í þokkabót. Finnst ég vera ógeðslega feit í dag og er þreytt og pirruð. En það þýðir ekki að væla yfir því. Helgi framundan og vonandi friður og ró til að hvíla mig fyrir dans á sunnudaginn.
Efnisorð: Ræktin

3 Comments:
Vildi sko vera í dansi með þér. Veit fátt skemmtilegra en það. Njóttu þess og bakið lagast. Þekki engann sem er eins dugleg við að koma bakinu í lag á stuttum tíma eins og þú. - luv jú - mamma
go girl.....we rock the world ;) luv litle miss Funny piggy :)
Halló! Ekkert nýtt?
Skrifa ummæli
<< Home