NO PAIN – NO GAIN
Það er eins gott að þetta eigi við því að ég er sko að upplifa pain partinn núna. OMG – fór á dansæfingu hjá Evu Rós frænku í gær. Skellti mér í módern tíma. Fannst ég kannski ekki alveg vera tilbúin fyrir hann og hún var að kenna Contemporary Urban beint á eftir þannig að mín bara ætlaði fyrst að horfa en skellti sér svo með í tímann. Þannig að 33.ára gömul konan sem að hefur ekki verið í dansi í hmm... ...13 ár var á dansæfingu í gær í rétt tæpa 4 tíma. Og ááááiii er orð dagsins í dag. Var ekki upp á marga fiska í gærkvöldi. Eiginlega gat ekki neitt í allt gærkvöld. Gerði samt heiðarlega tilraun í morgun til þess að vakna í ræktina.
Klukkan hringdi kl.5:25 og mín stoppaði hana. Fann að það var ekki allt eins og átti að vera bara við þá einföldu hreyfingu. Vaknaði betur og ætlaði að setjast upp. Það var nú bara eins og að biðja fjallið ekki bara um að koma til Múhameðs heldur dansa ballet þegar þangað er komið líka. Fór aftur að sofa.
Get sagt ykkur það að það er virkilega reynt á sársaukaþolið í dag og ég á eftir að upplifa dag 2 í þessu ferli enn þá. En þegar maður er að deyja í þessu sjálfskapaða helvíti þá getur maður fátt gert annað en að fara í Pollýönnuleik. Mantran mín í dag er “no pain – no gain – whole lot of pain has to have a whole lot of gain”. O gsvo staulast ég rosalega hægt um gangana hér. Ég meina ég hlýt að vera náskild mörgæsum í dag. Hreyfi mig allavega ískyggilega líkt þeim.
Ég veit ekki alveg hvað ég er að spá. Ég er sem sagt eins og áður hef sagt 33.ára og er svolítið að leika eins og ég sé 15.ára. byrja í fimleikum núna í fyrsta skipti á æfinni. Já var ég ekki búin að útlista því? Hí hí, já ég sem sagt fór í það í seinustu viku líka og ætla að vera í fimleikum einu sinni í viku. Það eru erfiðustu 120 mínútur æfi minnar og 30 mínútur inn í tímann langaði mig bara til að deyja. Og hvað gera konur þá? Skrá sig í tímann. Þannig að planið mitt er eftirfarandi:
Mánudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Þriðjudagar: FRÍ
Miðvikudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Fimmtudagar: 18:00-19:20 Contemporary Urban svo 20:00-22:00 Fimleikar 22:00 Potturinn
Föstudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Laugardagar: FRÍ
Sunnudagar : 17:00-18:30 Contemporary Urban
En stefnan er sem sagt. Ræktin í fyrramálið (af því ég klikkaði í morgun) og ekkert múður. Því að ef að maður sparkar þessum sperrum ekki heim til sín þá verð ég dauð fyrir hádegi á morgun.
Ein spurning: Ætli maður geti fengið svona vikulegt frí? T.d. á föstudögum. Bara svona spyr vegna þess að ég veit ekki hvernig þeir verða hjá mér svona til að byrja með.
Efnisorð: Ræktin

2 Comments:
Æææææiiiii.... fæ bara illt í skrokkinn að lesa þetta. Sko skolli vont þegar það er orðið "no pain no gain" og svo líka" beauty is pain" - djísus - þessi tilvera má ekki vera eitt allsherjar "PAIN"! - mamma
you gotta love pain!!!!! ihaaa.... ég meina við hljótum að vera að græða eitthvað á þessu.....þó ekki sé nema bara að þekkja allar hliðar sársauka :)....
Skrifa ummæli
<< Home