föstudagur, september 28, 2007

Ég er á lífi

Fór í dag í heilsufarsmælingu í World Class. Fékk að vita þar að ég væri yfir kjörþyngd (detti mér allar dauðar) en ég væri ekki offitusjúklingur (úff marr..). Eins og þeir vita sem eitthvað hafa kíkt hér inn hafa hinar ýmsu keppnir, átök, áskoranir og hvað það er nú kallað verið í gangi hjá okkur systrum þegar kemur að líkamsrækt. Með mjög misjöfnum og stundum, verður að viðurkennast, bara engum árangri. Nema jú, maður segir við sig að maður væri nú bara feitari án þeirra. Og hvað haldið þið. Jú, jú, enn ein vitleysan er farinn í gang. Og núna er það keppni dauðans upp á peninga. Og við erum 6. Stjáni, Auðunn, Siggi, Lotta, Inger og ég. Allir sem að hafa umgengist karlmenn eitthvað vita hvað er nú þegar komið í gang þeim megin og er einstaklingskeppnin allt í einu orðin kynjaskipt keppni líka. Ekki það að við systurnar séum eitthvað skárri þegar kemur að keppnisskapinu. Erum allar alveg sammála um það að það sé skárra að tapa fyrir systur heldur en hrokafullum “ég ætla að rúúúúústa þessu...” karlmanni. Ekki það að nein okkar hugsi sér að tapa fyrir systur sinni. Nei, þeir sem þekkja okkur vita að það er ekki option heldur. Þannig að af stað er haldið 6 mánaða keppni – já já – eina ferðina enn.

Og bara svona okkar á milli, þá ætla ég að rúúúúústa þessu.

Efnisorð:

föstudagur, febrúar 02, 2007

Ekki góður dagur

Er eitthvað utan við mig í dag. Gæti verið vegna þess að ég var ekki að brillera í dansi í gær. Fór í bakinu eina ferðina enn og er að drepast í úlnliðnum í þokkabót. Finnst ég vera ógeðslega feit í dag og er þreytt og pirruð. En það þýðir ekki að væla yfir því. Helgi framundan og vonandi friður og ró til að hvíla mig fyrir dans á sunnudaginn.

Efnisorð:

mánudagur, janúar 29, 2007

Afmæli og íþróttameiðsl

Góðan daginn. Litla barnið mitt er átta ára í dag. Hvernig getur þetta veriðog ég alltaf jafn ung? Við verðum með afmæli fyrir allan bekkin á eftir. Bæði strákarnir og stelpurnar rosalegt fjör. Og mín fær Sollu stirðu köku. Æði!

Svo eru það við systurnar. Já, sko Inger er biluð í puttanum. Ekki brotin (heldur hún) en rosalega bólgin. Komst að því að puttinn sem sagt stoppar ekki 80 kg í falli. En sniðugt að þurfa að testa svona hluti. Já og Lotta sleit æð aftan á hægra lærinu og er með hnefastóran svartan marblett þar og er tognuð framan á hinu lærinu. Frekar spes þessi elska. Þá er það ég. Ég er með vesen í bakinu og feit. Já, og með marblett á lærinu eftir að grípa stelpu í dansinum svona 20 sinnum. En annars erum við í fínu formi.

Seinna.

Efnisorð:

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Íþróttameiðsl

Haldiði ekki að ég sé slösuð á hægra lærinu? Reif eitthvað drasl upp og er eins og aumingi. Mín hélt bara fyrst að ég væri með svona miklu verri harðsperrur hægra megin en vinstra megin. Fannst samt svolítið skrítið að vera verri þeim megin þar sem að ég er rétthent og réttfætt. Legg meira á hægri fótinn og ætti því að þola meira. En svo kom á daginn að flestar harðsperrurnar fóru en verkurinn hélt sér. Ég er sem sagt formlega ekki 16 ára lengur. Þoli ekki shit og er bara gömul slitin kona. Í orðsins fyllstu.

Efnisorð:

mánudagur, janúar 15, 2007

NO PAIN – NO GAIN

Það er eins gott að þetta eigi við því að ég er sko að upplifa pain partinn núna. OMG – fór á dansæfingu hjá Evu Rós frænku í gær. Skellti mér í módern tíma. Fannst ég kannski ekki alveg vera tilbúin fyrir hann og hún var að kenna Contemporary Urban beint á eftir þannig að mín bara ætlaði fyrst að horfa en skellti sér svo með í tímann. Þannig að 33.ára gömul konan sem að hefur ekki verið í dansi í hmm... ...13 ár var á dansæfingu í gær í rétt tæpa 4 tíma. Og ááááiii er orð dagsins í dag. Var ekki upp á marga fiska í gærkvöldi. Eiginlega gat ekki neitt í allt gærkvöld. Gerði samt heiðarlega tilraun í morgun til þess að vakna í ræktina.
Klukkan hringdi kl.5:25 og mín stoppaði hana. Fann að það var ekki allt eins og átti að vera bara við þá einföldu hreyfingu. Vaknaði betur og ætlaði að setjast upp. Það var nú bara eins og að biðja fjallið ekki bara um að koma til Múhameðs heldur dansa ballet þegar þangað er komið líka. Fór aftur að sofa.
Get sagt ykkur það að það er virkilega reynt á sársaukaþolið í dag og ég á eftir að upplifa dag 2 í þessu ferli enn þá. En þegar maður er að deyja í þessu sjálfskapaða helvíti þá getur maður fátt gert annað en að fara í Pollýönnuleik. Mantran mín í dag er “no pain – no gain – whole lot of pain has to have a whole lot of gain”. O gsvo staulast ég rosalega hægt um gangana hér. Ég meina ég hlýt að vera náskild mörgæsum í dag. Hreyfi mig allavega ískyggilega líkt þeim.
Ég veit ekki alveg hvað ég er að spá. Ég er sem sagt eins og áður hef sagt 33.ára og er svolítið að leika eins og ég sé 15.ára. byrja í fimleikum núna í fyrsta skipti á æfinni. Já var ég ekki búin að útlista því? Hí hí, já ég sem sagt fór í það í seinustu viku líka og ætla að vera í fimleikum einu sinni í viku. Það eru erfiðustu 120 mínútur æfi minnar og 30 mínútur inn í tímann langaði mig bara til að deyja. Og hvað gera konur þá? Skrá sig í tímann. Þannig að planið mitt er eftirfarandi:

Mánudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Þriðjudagar: FRÍ
Miðvikudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Fimmtudagar: 18:00-19:20 Contemporary Urban svo 20:00-22:00 Fimleikar 22:00 Potturinn
Föstudagar: Ræktin 5:45 hita upp – lyfta – brenna
Laugardagar: FRÍ
Sunnudagar : 17:00-18:30 Contemporary Urban

En stefnan er sem sagt. Ræktin í fyrramálið (af því ég klikkaði í morgun) og ekkert múður. Því að ef að maður sparkar þessum sperrum ekki heim til sín þá verð ég dauð fyrir hádegi á morgun.

Ein spurning: Ætli maður geti fengið svona vikulegt frí? T.d. á föstudögum. Bara svona spyr vegna þess að ég veit ekki hvernig þeir verða hjá mér svona til að byrja með.

Efnisorð: