miðvikudagur, apríl 12, 2006

Páskafrí og mamma

Jæja nú er loksins komið að páskafríinu. Enginn ferming bara eitt afmæli. Lilli minn að verða 10 ára. Já, ótrúlegt en satt þá á ég 10 ára gamalt barn. Við ætlum nú bara að hittast fjölskyldan annað kvöld og ég ætla að grilla fyrir liðið. Svo verður fjörið á fimmtudaginn næsta. Þá koma skæruliðarnir úr bekknum hans. 12 stykki allir til í stuð og gaman. Úff verð bara þreytt á því að hugsa um það. Verð að finna einhverja leiki til að henda þeim í til að allt verði ekki vitlaust. Maður verður nefnilega að hafa svona skipulagt gaman en ekki bara gaman.

Annars verð ég nú að segja frá einu skemmtilegu sem að hún mamma gerði í morgun. Þannig er að ég sendi henni mynd af barnabörnunum sem var tekin á Þingvöllum í seinasta mánuði. Voðalega menningaleg mynd bara svona smá sönnunargagn að ég hefði jú, farið með börnin mín að ganga Almannagjá og kíkja í peningagjá og svona. Svo msn-ar mamma á mig “Hvaða typpamyndir eru þetta líka?”. Ég fór alveg í mínus. Skildi ekkert hvað hún móðir mín var að fara núna. Og hún sagði að jú, jú það væru sko typpamyndir með ömmubarnamyndunum hjá henni. Að hún hefði sko bara ýtt á örvarnar fyrir neðan myndina og þá hefðu sko komið upp einhverjar typpamyndir. Engar rosalega dónalegar en samt myndir af typpum. Ég kíkti á þetta hjá mér í útsendum pósti og sá engar örvar. Hugsaði í augnablik hvort að einhver vírus væri komið í kerfið sem að sendi svona dónamyndir með viðhengjunum. Guð, hvað ég var fegin að ég hafði bara sent þetta á mömmu en ekki á einhvern kúnna. T.d hjá Landsneti eða eitthvað. Svo á leiðinni inn til kerfisfræðingsins hérna í vinnunni ákvað ég að snúa við og fá betri upplýsingar hjá mömmu bara svona til að geta frætt hann betur um þessa gríðarlegu ógn sem að fyrirtækinu stefndi. Og mamma mín, þessi elska, sagði mér að hún væri að skoða þetta í Microsoft Picture and fax Viewer og að það væru svona örvar neðst á skjánum sem að hún hefði ýtt á og þá hefðu komið þessar typpamyndir. Og þá var ég allt í einu rosalega fegin því að hafa ekki talað við kerfisfræðinginn okkar því að þessar hrikalegu myndir voru náttúrulega bara leifar af einhverju sem að hún mamma hafði fengið sent á maili og opnað einhverju áður. Auðsjáanlega fær hún svona myndir það oft að það festist ekki einu sinni í minninu á henni. Sem er auðvitað meira en nokkur manneskja þarf að fá að vita um móður sína. En ég er svo fegin því að atburðarrásin mín megin hefði verið mun óþægilegri ef ég hefði talað við kerfiskallin hér. Sé þetta alveg fyrir mér. “Ummm, mamma mín sér typpi í tölvunni sinni og hún heldur að ég hafi sent sér þau. Geturðu hjálpað mér?” Úff, slapp fyrir hornið á þessum fíl.

mánudagur, apríl 10, 2006

Long time no see...

Það er það að frétta að Inger, litla barnið í hópnum, er flogið úr hreiðrinu. Þá meina ég úr höfuðborgarhreiðrinu. Hún er farin til austurlanda fjær og ætlar að setjast þar að í allavega 2 ár. Og hvaða austurlönd er ég að tala um? Það er von þú spyrjir, en það eru nefnilega Reyðarfjörður. Já, ég er ekki að grínast - Reyðarfjörður. Þar sem að íbúafjöldin er 650 manns og Inger ætlar sem sagt að bæta alveg 4 við. Inger hittir venjulega svona um 650 manns á degi hverjum sem að hún þekkir og ætlar hún núna að láta sér duga bærinn á Reyðarfirði.

Þessi elska lagði í hann á föstudaginn. Var komin upp á Rauðavatn þegar hún hringdi í Lottu til að kveðja og Lotta sagði; stopp, ég fer með. Inger þangað til að sækja hana og Lotta hringdi í mig. Ég sagði; stopp, ég fer með. Og án nokkurs fyrirvara var flutningur Inger orðið að roadtrip. Systurnar 3 one last time áður en að litla trippið skemmir allt. Og austur á leið stauluðumst við saman og það var eins gott því að Inger er ekki sleip á kortum. Komst að því og hún væri örugglega bara á Höfn í Hornafirði ef að við hefðum ekki komið með tuðandi í einhverjum ; "jú, jú þetta er Reyðarfjörður, ég veit það vegna þess að ég hef keyrt þetta áður. Var að vísu ekki ökumaðurinn og svaf svolítið á leiðinni en samt.". Og ekki er Lotta betri. Öxi eða ekki öxi hmmm. Tölum ekki um það.

Við sáum hreindýr á leiðinni (já, svona alvöru en ekki svona eins og eru í bænum) og eina túristastoppið sem að var tekið var í Jökulsárlóni. Rosalega er það fallegt. Á leiðinni heyrðist eitthvað frá Lottu á þá leið að ef að hún hefði farið þetta þá hefði hún nú þurft að fara þetta ein og upp hófst eitthvað þras um það. Fannst mér þetta fyndið af því að það vita allir sem þekkja okkur að ef að svo hefði verið þá hefði Inger farið með henni en ef að ég hefði farið þá hefði enginn farið með mér. Þær reyndu að klóra í bakkann með einhverri vitleysu um að þær myndu sko alveg treysta mér fyrir að koma mér á leiðarenda bla bla bla ... Svo þegar við vorum búnar að skila Inger á réttan stað og taka út place-ið og gistiheimilið á Eskifirði þá flugum við Lotta heim aftur í menninguna og prísuðum okkur sæla. Ekki er þetta fyrir mig en vonandi verða þau ánægð.

Meira seinna.