fimmtudagur, mars 29, 2007

Áskorun 2007

Það virðist vera að það sé komin einhver áskorandakeppni í gang. Þannig er að Inger fór í FMÍ út af áskorun sem enginn man hver er lengur. En núna er sem sagt komið betra form á þessa keppni.

Þannig er að við Lotta skoruðum á Inger að ef að hún kæmist áfram í úrslit þá færum við í prufur fyrir X- Factor næst (ef það verður haldið). Inger komst ekki áfram (svindl) en þá kom ný áskorun. Hann Auðunn, þessi elska, og það fyrir framan fleiri vitni nefnilega sagði að ef að við færum í X-Factor þá myndi hann keppa í Dragkeppni. Og ef eins og það væri ekki miklu meira en næg ástæða til að gera þetta þá ætlar hann sem sagt alla leið með þetta. Vax og allt.

Þannig að ég og Lotta erum bara byrjaðar að æfa prufulagið og ætlum sko að hleypa stráknum í dragið. Við bregðumst ekki okkar vinum.

BTW – Siggi og Gunni ætla að keppa í Fittness ef að við förum í þetta. Þannig að ég bara græði og græði á þessu. Svona ef að maður horfir fram hjá því að mögulega gera sig að fífli í sjónvarpi. Spurning að leyfa Lottu að syngja bara duru duruuuu? Það virkar allavega svakalega fínt í Singstar.

Er einhver með áskorun á einhvern? Anyone? Anyone???

Efnisorð:

miðvikudagur, mars 28, 2007

Fyndnasta Kona Íslands

Fór á Fyndnasti maður Íslands seinasta fimmtudag. Fór nú reyndar öll kvöldin 4 af undanúrslitum en þetta var náttúrulega “The Night”. Inger systir að fara að meika það og ef ekki það þá allavega að feika það. Það var farið og sest á fremsta bekk svo litla systir gæti horft djúpt í augu mér ef hún yrði stressuð. Algerlega litið fram hjá því að hún er svo nærsýn að það hálfa væri miklu meira en nóg og hún sýndi sig án gleraugna á sviðinu.

Annars verð ég nú að segja það að hún stóð sig algerlega eins og hetja þessi elska. Svona líka svakalega fyndin og flott á sviði. Ekki það að hún sé ekki flott bara svona yfir höfuð en sérstaklega flott í spottaranum. Það var náttúrulega algert hneyksli að hún kæmist ekki áfram og eiginlega algerlega nauðsynlegt fyrir jafnréttisráð að skoða þetta mál. Það að fimm karlmenn keppi um stöðuna Fyndnasti Maður Íslands getur náttúrulega ekki verið rétt. Annars vörum við nú algerlega búnar að sjá það út að hún Inger er náttúrulega BARA Fyndnasta KONA Íslands.

Annars var þetta líka furðulegt kvöld í alla staði. Einhver snillingurinn í keppninni spurði hvort kærastan hennar væri með henni. Það átti sem sagt að vera ég. Hann búinn að mæla það út þessi elska að við værum par. Inger var fljót að leiðrétta þetta. Við svæfum nú stundum saman en það væri meira svona sifjaspell.

En svona til heiðurs Inger þá er þetta hvorki né haus né staf og ég kveð í bili.