mánudagur, október 20, 2003

Góðan daginn!

Orðið svolítið langt síðan ég lét í mér heyra þannig að ég skulda nokkur orð. Veikindi heima við, ekkert sem þarf að eyða fleiri orðum í hér. Bara ekki gott. Svo með extra börn á laugardaginn og ekkert svo sem meira við það að segja heldur. MIKIL LÆTI!!!!

En annars ekkert að gerast – fór í ræktina í morgun með systrum mínum og verð nú að deila með þér (þessum eina sem að villist hér inn af og til) sniðugu atviki sem að átti sér stað þar. Það er nú einu sinni þannig að við konurnar erum (svona flestar) vel kunnugar okkar eigin kroppi. Við erum (aftur flestar) með einhverskonar “obsession” á líkamanum okkar á einhvern hátt. Rassinn of stór, brjóstin of lítil, ógeðslega feitar eða geðveikt fit svo eitthvað sé nefnt. Hvort sem að við erum ánægðar eða ekki erum við með þetta farartæki okkar í stanslausri gjörgæslu (þótt að hún skili svo sem ekki alltaf neinu) þannig að við ættum að þekkja hann ágætlega.

Ekki hún litla systir mín. Mér var litið á hana þar sem við vorum að koma okkur í fötin eftir sturtuna og svipurinn á henni var eins og hún hefði séð draug. “Ekki segja mér það” voru fyrstu orðin. Svo kom “ert’ekk’að grínast?”. “Er annað brjóstið á mér meira lafandi en hitt?” Horfði á mig grafalvarleg á svip og var ekkert að hugsa um hversu súr spurning þetta var svona inni í búningsklefa kvenna í ræktinni. Ég gat ekki setið á mér þrátt fyrir að það væri auðsjáanlegt hversu mikið þetta fengi á hana, að svara “Já og hitt er líka minna.” Henni var ekki skemmt og var ég að spá í á tímabili hvort hún þyrfti áfallahjálp eftir þessa lífsbreytanlegu uppgötvun. Spurningar um þetta ástand eins og t.d. hvort að maðurinn hennar væri búin að taka eftir þessu og ekkert búinn að láta hana vita vöknuðu hjá henni og ætlaði hún að krefja hann svara um leið og mögulegt væri (sem í hennar tilfelli er þegar hún kemst í næsta síma ;) ). Spurning: ertu búin að ná í hann???

En þegar líður á daginn er mikið búið að spá í : Hvað kom eiginlega fyrir??? Ein tilgátan er (og ég flegi henni bara fram án ábyrgðar) er skvass.

Í skvassi er maður hallandi fram og eilítið til annarrar hliðarinnar. Þannig verður annað brjóstið meira fyrir aðdráttarafli jarðarinnar og svo þar sem að þyngdarpunkturinn er meira yfir í “neðra” brjóstinu þá verður meiri fitusöfnun þar. Þannig að lausnin er að skipta um hendi (á spaðanum) og halla í hina áttina. Kannski jafnast þau þá út. Nei bara svona hugmynd.

Memo to me: Orsök og afleiðing – ekki mín sterka hlið að grafa djúpt í það.

mánudagur, október 13, 2003

Helgin kom og fór. Gerði lítið sem ekki neitt.

Jæja ég fór í Fludo á föstudskvöldið og spilaði við stelpurnar. Og fór heim. ...

Svo klúðraðist kvöldið á laugardeginum af mjög svo (alltaf) "óviðráðanlegum" ástæðum - ekki mín orð. Nenni ekki að tala um það.

Jæja SURVIVOR kvöld komið aftur og allar að glápa. Minn maður er víkingurinn - ef mér leyfist að kalla hann svo. Hann er bara eitthvað svo ... ... mikið krútt. Hann er eins og hærri útgáfa af dvergnum í Lord of the Rings. Vantar bara brynjuna. Kíkiði á það.

En nóg um eitthvað sem er ekki neitt.

föstudagur, október 10, 2003

Jæja nýr dagur og ný helgi! jibbíííííí

Líður ykkur ekki svona líka? Fór í ræktina í morgun (of sein) en finnst ég vera rosa healthy og flott. Aðalega flott sko. Við skulum alveg hafa það á hreinu!

Prógramið alveg að smella saman fyrir helgina, ef að prógram skildi kalla. Rólegt kvöld í kvöld og aðalega farið að sofa snemma (sem að gerist alltaf þegar ég ætla að gera það ) ;-). Svo annað kvöld verður kannski e-ð nett. Ekkert mikið þótt að ég sé nú alveg komin á tíma með svoleiðis. Það er bara þannig að djammlífið þolir bara engann veginn svona hot babe eins og mig svo oft á djamminu. Maður verður nú að gefa öðrum séns á smá athygli. Sko - það er ekki að ég sé orðin svo gömul (sem að virðist vera skoðun sumra - nefni enginn nöfn, en þið vitið hver þið eruð) heldur er ég svo tillitsöm við náungann.

Memo to me: Fara í það hvað orðin afneitun og sjálfsblekking þýða!

miðvikudagur, október 08, 2003

Hvað á maður að gera við fólk sem að þarf allt of mikið?

Það er til fólk þarna úti sem að virðist ekki ráða við sig. Þú veist um hvaða fólk ég er að tala. Þeir sem að hringja bara til að kvarta í þér að þú hringir ekki nógu oft í það eða komir nú ekki nóg í heimsókn eða þá bara að þú standir þig nú ekki nógu vel í því að gera nóg með þeim. Það er aldrei neitt NÓG fyrir þau.

Ég þekki svona fólk. Fullt af þeim. Hvað er það með þetta fólk heldur það í alvörunni að það fái mig eitthvað til að hlaupa í heimsókn eða hringja stax á morgun ef að það suðar í mér um það hvað þessi hluti af mér semað það fær sé ekki nóg. Ég á þá náttúrulega að segja (með bros á vör – notabene) “gjörðu svo vel að fá þér meira”. Er það ekki???

Svo hafiði tekið eftir því að samtalið við þetta fólk snýst svo sjaldan um neitt annað en það sjálft. Ég er að gera þetta, ég þarf á ráðleggingum að halda (sem að ég ætla svo ekki að fara eftir hvort eð er, svo ekki eyða púðri), ég er svona. Allt sagt í einhverjum afsökunnartón – eða ekki beint afsökunnartón heldur... ...þú veist, þessum tón sem að segir mér líður illa og ég þarf á því að halda að einhver segi við mig að ég sé frábær tón. Svo að þú verður að peppa viðkomandi upp. Setja upp hughreystandi-grímuna (sem að felur “shut the fuck up” svipinn á andlitinu)og segja allt sem til þarf til að þetta fólk geti farið heim til sín ánægt. Bara svo það FARI. Kannastu við þetta???

Af hverju er fólk svona djö... þurfandi? Líkaðu vel við mig, taktu eftir mér, vertu með mér, fyrir mig, hugsaðu um mig. Það er náttúrulega sorglegt að vera enn þá svona á fullorðinsárum. Eins og barn sem að þarf athygli. En þetta er samt óþolandi.

þriðjudagur, október 07, 2003

Venjulegur dagur. Þarf að vakna snemma á morgun. Þá meina ég snemma. Er ein af þeim sem að er að rembast við það að fara í "ræktina" 3var í viku og þegar ég skoðaði dagskránna með mínum þá komst ég að því að eini tíminn sem að var laus (þ.e.a.s. sem að ég mátti fara) var áður en allir hinir á heimilinu vöknuðu.

Svo verð ég líka að fara beint heim til að koma öllum hinum á fætur og af stað í skóla og vinnu. Guð forði HONUM frá því að gera þetta sjálfur 3var í viku - aleinn!

Hver eru einkennin af "Superwoman" heilkenninu??? Ræktin, börnin, vinnan, maðurinn, heimilið ,vinirnir, fjölskyldan (aðrir en þeir sem deila með manni heimilisfangi), áhugamálin, og örugglega eitthvað fleira sem að ég er að gleyma.

Sinna öllu vel og klúðra aldrei neinu. Reyni þetta!!! ...SURE

Geri of lítið af flestu og of mikið af hinu. Spurninginn er svo hvað er hvað...

mánudagur, október 06, 2003

Ekkert spennandi að gerast í dag. Annað en Survivor gengið hittist í­ kvöld yfir þættinum. Erum pínulítið sorglegar og smá húkkt á reality þáttum. Hver hefur ekki gaman af því að horfa á fólk gera sig að algeru fífli fyrir peninga. Þeir sem segja "ekki ég" eru að ljúga. Þetta er einfaldlega næsta skref á eftir því að hafa gaman af kjaftasögum. Og guð veit að við hlustum ALDREI á svoleiðis!!!! Hmmm???