miðvikudagur, mars 31, 2004

Sumarpirringur

Það hefur vottað fyrir smá sumarkvíða hjá litlu systir minni í dag. Hana kvíðir fyrir væntanlega tíðum (ekki spurning!) ferðum karlmannsins á heimilinu á golfvöllinn um leið og tækifæri gefst. Hún talar um að vera grasekkja á sumrin (hún og Lotta). Hún talar um að hún ætli að plana ferðalög og sumarið með Lottu af því að þær eru svo mikið á sama báti. Og þegar hún er búin að vinna í Lottó þá ætlar hún að kaupa 7 manna bíl og ferðast um landið með Lottu systir. Maður getur nú orðið sár.

Og viðurkenning fyrir að ver grasekkja ársins (og undanfarinna 4 ára) er.... Ég. Ef að viðmiðunin er hversu mikið, eða þá í þessu tilviki lítið, karlmennirnir eru heima þá vinn ég hvaða keppni sem er. Ég er núna, í mars með snjóinn úti, orðin grasekkja. Minn maður vinnur, í grasinu og trjánum og guð má nú vita hverju, alla daga, öll kvöld og stundum fram á nætur. Ef að hann er ekki að athuga með verk er hann að skipuleggja þau, vinna þau, redda einhverju fyrir þau eða gera við eitthvað sem að hann þarf fyrir þau. Hann er heima í 30 – 45 mín í kring um kvöldmatinn and that is it. Ég er einstæð, eins og ég kalla það, frá mars til nóvember/desember ( þið getið reiknað dæmið til enda). Siggi hefur tekið alls 9 vinnudaga frí síðan dóttir okkar fæddist fyrir fimm árum síðan. Hann hefur tvisvar tekið sér frí heila helgi á meðan á annatímanum stendur (mars til nóv, ef að þið voruð búin að gleyma því). Það eina sem að breytist frá því núna og fram í maí er að hann verður meira að vinna á nóttunni. Og svo er ég ekki einu sinni til hjá systrum mínum. Veit ekki hvað maður á að gera til að komast í grasekkju”klúbbinn”. Sem er hálf asnalegt þar sem að ég stofnaði hann.

Þetta er minn pirringur. Ekki nóg með að maðurinn minn sé fjarverandi allt fu***** sumarið heldur er ég ekki nógu merkileg til að vera með í plönum sumarsins með systrum mínum. Sumar - jibííí :(.

mánudagur, mars 29, 2004

Hreyfing!!!

Þarf að fara að hreyfa á mér rssinn aftur. Er alveg búin að tapa coolinu (ekki það að ég hafi haft mikið) í LB-uni. Nenni þessu ekki. Væri svo meira en til í (þegar snjóinn tekur upp aftur) að Stellurnar/Survivor/einhverjar færu að útileikjast eða eitthvað aftur.

Er komin með ógeð á því að gera ekki neitt. Ojj ojjojojjjjjjj.

I og L!!! Kem á miðvikudaginn!!! Pottþétt.

föstudagur, mars 19, 2004

Ojj ojj ojj!!!

I feel like crap! Grefur í hálsinum á mér og leiðir upp í eyra. Er að fara í brúðkaup á morgun (og boðið í partý sem að ég er geðveikt heit fyrir). Er að fá litlu frænku í heimsókn á eftir (skemmtileg frænka - hundleiðinleg er réttara sagt(það er að segja ég- ekki hún- hún er yndisleg)) og veikindin svoleiðis tröllríða heimilinu. Sá eini sem að stendur enn þá er Siggi. Sem er furðulegt þar sem að hann yfirleitt er alltaf veikur eða "slappur". Sýnir bara að skammdegisþunglyndið er í rénum.

En annars er það að ég efni til þess að fólk styðji ekki við bakið á DV með því að kaupa þetta sorablað. Umfjöllunin um þroskaheftan einstakling um daginn í Þorlákshöfn var seinasta hálmstráið. Að tegja og toga orð sema ð hann og fleiri "heimildarmenn" láta út úr sér ... segi ekki það sem að ég er að hugsa. Ég er bara orðin þreitt á svona blaðamennsku. Líf fólks lagt í rúst og ekkert tekið tillit til neins bara til að selja blöð með æsifréttamennsku. Styð þetta ekki. Á mínu heimili er þetta bannblað. Þeir mega gefa það út ég ætla bara ekki að taka þátt í því að borga launinn þeirra.

föstudagur, mars 12, 2004

Loksins konið comment kerfi aftur þannið að hægt er að fara í s***kast núna. Verði ykkur að góðu.

fimmtudagur, mars 11, 2004

Litlir strákar!

Þetta er eitthvað sorglega rólegt líf hjá mér þessa dagana. Nú allt er rólegt annað en það að pabbi er fluttur inn. Skilinn. Löggan er í húsinu og það kemur enginn í heimsókn. Ógeðslega fyndið. Fóbían hjá vinum hans Sigga er þvílík (enn þá þrátt fyrir að flestir þeirra séu svo stilltir strákar í dag!!!) að þeir hringja núna í Sigga inn og hann fer út á plan til þeirra ef að þeir koma til að ná í eitthvað. Ástæðan fyrir því að mér finnst þetta fyndið er að það hringir örugglega einhver á lögguna bráðum út af því að þeir koma á bílunum og eftir smá stund kemur karlmaður út og réttir þeim eitthvað í bílinn og svo fara þeir. Og ef að þetta gerist ekki hleypir karlmaðurinn þeim á bílnum inn í bílskýli í x-langan tíma þar sem, guð má nú vita hvað, fer fram (verið að þrífa bílana, gúrkurnar ykkar, voruð þið farnar að sjá fyrir ykkur eitthvað vafasamt?) . Hmm hvernig ætli það líti nú út??? Þannig að þeir gætu endað í löggunni fyrir það eitt að vera að reyna að forðast hana!

mánudagur, mars 08, 2004

Allt í rugli!

Það er eitthvað að þessarri síðu - fæ ekkert til að virka eins og það á að gera! Hjálp!!!

Helgin

Gerði ekkert merkilegt. Var með mýgrini allan föstudaginn og laugardaginn. Sá um fjölskylduna mína. Fór í/með mat til mömmu í hádeginu á sunnudaginn með systrum mínum. Óóóh, og pabbi skildi við konuna sína og flutti inn.

mánudagur, mars 01, 2004

SMÁ BREYTINGAR OG KOMIN AFTUR

Hvernig lýst ykkur á?