föstudagur, apríl 30, 2004

Djamm djamm og Brad...hmm?!

Ég ætla á, well eitthvað allavega í kvöld. Langar að fá mér bjór og fara eitthvað út og hafa smá gaman. Það er nú eitthvað að klikka heilsan hjá sumum en ég gefst ekki upp fyrr en í fulla...

Annars var ég að fá sent til mín í vinnunni myndir af honum Brad okkar Pitt þar sem að í lokin sést hann kviknakinn. Er ekki að ljúga þessu, þetta er dagsatt. Vandinn er að ég á ekki eftir að geta litið hann sömu augum aftur. Inger systir er alltaf að tala um að Brad þetta og Brad hitt, "hann er alltaf að hringja" og "hann skilur ekki að þetta er búið hjá okkur" o.s.frv. Og ég hef bara tvennt að segja eftir þessa upplifun mína af myndunum. Að birta þessar myndir er mean og ég skil alveg af hverju þessu lauk hjá Brad og Inger systir. Talandi um að eiga við smá vandamál að strýða. Segi ekki meir af því að , eins og þið vitið, er ég ekkert fyrir gossipið.

En í lokin er þetta: held að ég sé loksins búin að fatta af hverju mér persónulega finnst karlmenn miklu meira sexy og (afsakið orðbragðið) "ríðilegir" þegar þeir eru í allavega nærbuxum, því að kynkvöt okkar kvenna liggur svo mikið huglægt og er oft svo miklu skemmtilegri en raunveruleikinn. Og um leið og brækurnar fljúga þá tekur reality við. Ekki það að enginn þeirra "standi" undir væntingum það er bara stundum sem að þetta skemmir fyrir. Stundum sem að fantasían er miklu, miklu betri en raunveruleikinn. Allavega vildi ég að ég hefði aldrei séð Brad nakinn.

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Sometimes I fell like I’m in Barcelona. And all I want to do is go back.

Það segir það allavega í laginu. Barcelona er bara yndisleg borg. Eitthvað fyrir alla og fyrir öll tilefni. Við fengum æðislegt veður, ef að frá er talin fimmtudagurinn þá var rigning, en það skipti ekki neinu því að það var skoðunarferðardagur og bara fínt að fá smá rigningu á meðan. Annars var 20 og yfir allan tímann. Það er eflaust hægt að vera í þessari borg í 6 ef ekki 12 mánuði og vera alltaf að skoða eitthvað nýtt. Það er allt þarna á einum stað. Ströndin fyrir “dude-ana”, söfnin fyrir stóra fólkið, sædýrasöfn og smábátahöfnin fyrir krakka á öllum aldri, Fallegir sögulegir staðir frá hinum ýmsu tímabilum o.fl o.fl. Ég var strax farin að plana næstu ferð á fyrsta degi. Og núna get ég ekki beðið eftir að fara aftur. Sometimes.....

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Hæ - Long time no blogg!!!

Langt síðan börnin mín. En bara stutt. Er að fara til útlanda eftir 6 daga og get ekki beðið. Jibbíííí!!!!