Kaffi á kvöldin = martröð og svefnleysi
Mig dreymdi líka þessa endemis vitleysu í nótt. Ég vill kenna þessu alfarið á kaffið sem að ég drakk í gær þegar að vinur mannsins kom í heimsókn og heimtaði kaffi. Það er orðið svolítið langt síðan ég drakk kaffi svona seint að kveldi. Svo var planið að fara í ræktina í morgun þannig að um leið og hann fór var hent sér upp í rúm og reynt að nota viljann einann til að fara að sofa. Eins og allir vita er það ekki hægt, en það stoppar mann ekki í því að reyna. En loksins kom svefninn og myndi maður þá ætla að baráttan væri búin en nei. Þá vaknaði ég fyrst eftir klukkutíma. Hvar er Siggi??? Hann er ekki kominn heim samt var hann á leiðinni áður en ég fór að sofa. Það hefur eitthvað komið fyrir!! “Siggi???!!!” Hlustað. “Já” Hann hafði þá bara sofnað fyrir framan sjónvarpið frami. Gremja. Helv... að láta mig hafa svona miklar áhyggjur af sér þannig að ég vakna. Veit hann ekki að ég er að fara í ræktina í fyrramálið? Getur hann ekki drullast upp í rúm á kvöldin þannig að ......
Svo sofnaði ég aftur. Og þá fór mig að dreyma vitleysuna. Ég var að vinna í Japan (???) og bjó þar í risastórri blokk. Svo þegar ég átti að fara í vinnuna þá kom Inger til að fylgja mér þangað. Þetta var auðsjáanlega fyrsti dagurinn minn. Við fórum niður með lyftu og út á litla bryggju. Þar beið svona svifnökkvi til að ferja vinnufólkið til vinnunnar. Inger og ég um borð og þeystumst í gegnum sefið sem óx allstaðar upp úr vatninu. Þetta var samt skrítið vegna þess að mér fannst Inger ekkert vera systir mín og hún aktaði ekkert svoleiðis heldur. En allavega við komum að annarri bryggju og þar skiptum við um nökkva og svona gekk þetta í einhvern tíma. Allt í einu átta ég mig á því að mín versta martröð er orðin að veruleika. Hvað er verra en að vera nakin á opinberum stað í draumi??? Það að vera BARA nakin að neðan!!!!! Og þar hrekk ég upp. Lít á klukkuna. Hún er 2:38 – farðu aftur að sofa þú ert að fara í ræktina.... Svo eftir langa baráttu við sjálfa mig sofna ég aftur. Og er mín ekki aftur um borð í helv... bátnum ENN ÞÁ ber að neðan. Það er verra og þarna var ég að hoppa úr einum bát í annan. Ekki fallegt. Svo fæ ég vinnubúninginn minn. Baby bleikan pínutopp og snípsítt pínupils hvað er það ofaná brauð??? Og er að reyna að troða mér í þetta til að vinna hvar???? Í námugreftri. Já já auðvitað á maður að vera á háum í pínupilsi að grafa námur. En ekki hvað? Og svo hrekk ég upp aftur kl. 4:45. Stari á klukkuna – Þú átt að vakna eftir 3 korter. Farðu að sofa – farðu að sofa – farðu að sofa. Kl. 5:15 gafst ég upp og stillti klukkuna á 7.
Memo to me - Fer í ræktina á morgun – og kaffi er hér með bannað á kvöldin.
Ráðgátan um bílskýlið
Það var brotist inn í bílskýli á ótilgreindum stað í bænum í nótt á milli kl. 2 og 5:45. Þannig var að bílskúrshurðin hætti að virka á einhvern dularfullan hátt á fimmtudag með þeim afleiðingum að handaflið eitt og sér var nóg til að opna hurðina. Þegar inn var komið hafa þjófarnir tekið heldur betur til hendinni. Brotist inn í 7 bíla og allt tekið. Brotnar voru rúður í einhverjum bílana og er því tjónið talsvert. Þegar að lögreglan var kölluð á staðin kom snarlega í ljós að gáfnapróf er ekki ein af kröfum Lögregluskólans til inntöku. Buðu þeir fram hinar ýmsu kenningar um það hvernig hefði verið staðið að innbrotinu sem að íbúarnir keyrðu niður hver af annarri. Má þar á meðal nefna tillögur eins og að þeir hefðu opnað með hurðaopnara sem hefði verið stilltur eftir kódanum á bílskýlinu þar sem að það hefði ekki verið skipt um hann síðan í síðasta innbroti. En þar sem að hurðin var BILUÐ þá hefði hurðopnarinn þeirra ekki gert mikið gagn. Svo bentu íbúar líka á að þetta er í 3ja skiptið sem að brotist hefur verið inn nóttina eftir að hurðin “bilar”. Hmmm, þarf ekki hagfræðin til að finna það út að þetta er tilviljun sem getur ekki staðist. Ekki nema að þetta séu þolinmóðir þjófar sem að athuga hurðina á hverri nóttu en ákveða bara að bíað þar til hún er biluð til að fara inn. Þeir brjótast nefnilega BARA inn í bíla ekki hús.
En af öðrum fréttum er það að frétta að ekkert var tekið frá okkur – í þriðja skiptið – og að nágrönnunum er ekki farið að lítast á blikuna með það. Iðnaðarmaðurinn með rándýru tækin sín liggjandi á glámbekk og ekkert snert hjá honum. Hvað myndir þú hugsa?
En við erum með okkar eigin kenningar um það hvernig er í potti búið og kannski bara kannski verður það einhvern tíman tíundað hér.
Maðurinn minn = Neandrathalsmaðurinn ???
Ég er búin að vera með smá vísindatilraun í gangi heima hjá mér í nokkra mánuði. Þannig er að maðurinn minn er sjúkur í súkkulaði. Helst á það að vera suðusúkkulaði eða einhverskonar hjúpar. Og ef að ég ætlað að baka með suðusúkkulaði þýðir ekkert fyrir mig að kaupa það t.d. á miðvikudegi og baka ekki fyrr en á föstudegi. Þá er það einfaldlega búið – alveg sama þótt að ég kaupi 3 pakka með tveimur plötum í og ég þarf bara eina, þá er aldrei nóg eftir. Þannig að ég er farin að reyna að fela þetta. En það er fyndið að alveg sama hvar ég set þetta þá finnur minn súkkulaðið á mettíma. Yfirleitt innan við 30 mín eftir að hann kemur heim – og nota bene, án þess að vita af því að ég keypti það áðan. Það er eins og hann sé með radar á þetta.
En allt þetta væri nú kannski ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að þetta er sami maðurinn og finnur ekki sokkana sína nema honum sé vísað á sokkaskúffuna. Og hringir alveg hiklaust í mig í ræktina til að spyrja mig hvar hin og þessi peysa eða buxur séu. Og mér er spurn; Hvernig er hægt að vera svona framtaksamur og sjálfbjarga í súkkulaðileit en ekki þegar kemur að því að klæða sig. Er þetta hægt???? Það eina sem að mér dettur í hug er að hann sé bara náskyldur Neandrathal-manninum (eða hvernig sem það er nú skrifað). Hann er enn með þefskynið fínstillt á að finna matinn en þetta með að ganga frá og finna aðra hluti ekki svo mikið komið enn þá. Þetta er mín kenning.
Jæja mín bara mætt aftur
Og núna á að taka á því. Komin í enn eitt aðhaldið. Og nú á það að takast. Henti 1,5 kílói á síðastliðinni viku og er enn að passa mig. Borða reglulega ekki meir en svoan 250 -300 kal í hvert skipti og lítið af fitu. Held mig í svona 1200 kal á dag. Skal ná af mér 10 - 15 kílóum fyrir næsta sumar. Það er markmiðið í ár; þurfa að kaupa mér ný föt í vor. Þannig að ég fer a´æfingu allavega 3var í viku að púla (hálf drepa mig á Orbitrekkinu) og stundum að lyfta ( ái - harðsperrur). En þetta er voðalega gaman (bara halda áfram að segja það - þá verður það satt) og ég er ekkert svöng (nei nei, magin á mér er bara að tala við mig - allan daginn).
En ég ætla að gera þetta núna. Ætla að verða ein af þessum gömlu skutlum þegar ég verð stór. Þessum sem að gera allt. á línuskautum og í afrískum dönsum og eru enn þá gellur um sjötugt. Og svo er þetta örugglega það eina sem að ég og minn maður getum átt sameiginlegt svona í ellinni. Við getum farið saman í ræktina og "spottað" fyrir hvort annað í bekkpressu. Svo ef að hann missir þá verð ég hvort eð er í svo góðu formi að maður fer bara á markaðinn og meikar það feitt. Nei bara að grínast. Ég yrði náttúrulega alveg eyðilögð. Í alvörunni... ... ég meina það!