Áskorun 2007
Það virðist vera að það sé komin einhver áskorandakeppni í gang. Þannig er að Inger fór í FMÍ út af áskorun sem enginn man hver er lengur. En núna er sem sagt komið betra form á þessa keppni.
Þannig er að við Lotta skoruðum á Inger að ef að hún kæmist áfram í úrslit þá færum við í prufur fyrir X- Factor næst (ef það verður haldið). Inger komst ekki áfram (svindl) en þá kom ný áskorun. Hann Auðunn, þessi elska, og það fyrir framan fleiri vitni nefnilega sagði að ef að við færum í X-Factor þá myndi hann keppa í Dragkeppni. Og ef eins og það væri ekki miklu meira en næg ástæða til að gera þetta þá ætlar hann sem sagt alla leið með þetta. Vax og allt.
Þannig að ég og Lotta erum bara byrjaðar að æfa prufulagið og ætlum sko að hleypa stráknum í dragið. Við bregðumst ekki okkar vinum.
BTW – Siggi og Gunni ætla að keppa í Fittness ef að við förum í þetta. Þannig að ég bara græði og græði á þessu. Svona ef að maður horfir fram hjá því að mögulega gera sig að fífli í sjónvarpi. Spurning að leyfa Lottu að syngja bara duru duruuuu? Það virkar allavega svakalega fínt í Singstar.
Er einhver með áskorun á einhvern? Anyone? Anyone???
Efnisorð: Áskorun

2 Comments:
Nei nei ... ég þori ekki að vera með neina áskorun! Annars á ég von á að þurfa að gera eitthvað líka og það gengur sko ekki. - skal styðja ykkur systurnar í X-factor eða hverju sem er. - mamma
Eitt er víst, ekki er hægt að segja að þú sért öflugur bloggari ..... þó ertu öflug í´mörgum hlutum en ekki bloggi það er nú alveg víst mín kæra krúttíbolla
luv jú lots
Danadrottningin
Skrifa ummæli
<< Home