Dagur 32 – Allt á hornum mér í dag
Þvottavélin bilaði á mánudaginn í síðusustu viku. Þeir voru að klára að gera við hana núna en er ekki viss um að þeir hafi gert við hana (þurrkarinn fór tvisvar til þeirra og það er enn þá skrítið hljóð þegar hann hitnar). Hún nefnilega vatt ekki þvottinn en dældi bæði inn og út vatni og þeir skiptu um dælu. Hmmm???
Mælingin í síðustu viku var bömmer. Allar tölur upp á við (snökt snökt). Vissi alveg upp á mig sökina er ekki búin að vera dugleg að brenna og svo svona afmæli og svoleiðis ólifnaður. Verð að passa mig.
Fór í bakinu á föstudaginn. Og ekkert svoan finn til í bakinu – heldur full on sef ekki fyrir verkjum finn til í bakinu. En ég ætla samt að vera dugleg í ræktinni því að ég er ekki að fara að tapa.
Er búið að vera gott veður í fríinu mínu nema í gær og í morgun en núna er að rofa til þannið að ég sé þig seinna – adios.
Dagur 21 – Rosalega er þetta fljótt að líða
Það eru komnar 3 vikur af 10. Mér finnst við vera nýbyrjaðar í þessu átaki. Ég verð að fara að spýta í lófana og taka mig á með þyngdina. Ekkert að gerast á þeim vígvelli enn þá og hugsa að mælingin í næstu viku verði mér ekki hagstæð þar sem að ég missti mig svolítið seinustu helgi (átti afmæli). En ég mætti þó alein á æfingu í morgun og brenndi í góðar 40 mínútur og svo teygjur á eftir. Sko mína. Samt ógó lonely þegar stelpurnar eru ekki.
Annars er mamma eitthvað farin að hafa áhyggjur af hegðun okkar systranna á almannafæri. Veit ekki hvað hún er að byrja á því núna – allt, allt of seint!!! Og ég er nú bara hissa að hún sé hissa. Eins og þetta hafi ekki alltaf verið svona. Við höfum alltaf verið svona óútskýranlegt afl þegar við erum saman. Og það hefur aldrei verið þannig að Grýtubakkasysturnar hafi látið fara lítið fyrir sér. En eflaust hefur mamma rétt fyrir sér. Við erum örugglega á milli tannanna á fólki á ólíklegustu stöðum. Allavega Inger.... hí hí hí.
Hún litla systir mín er nú alveg milljón. Hún er sem sagt deildarstjóri hjá ónefndu kallakompaníi út í bæ (hóst..eða sveit réttara sagt). Þar stjórnar hún fullt af köllum og gerir það örugglega vel. En svo þurfti eitthvað að mála í vikunni á skrifstofunni og Inger hélt nú ekki að hún færi að borga einhverjum fyrir þetta. Hún kynni sko alveg að mála og gæti bara gert þetta sjálf. Svo að mín reddar málningu og fattar þá að hún gleymdi fötum heima til að mála í. (Þeir sem að þekkja Inger vita núna er þetta að verða spennandi) Svo að mín vippar sér í Rúmfatalagerinn (spara – spara – spara) og kaupir ódýr náttföt sem að örugglega duga í verkið. Og svo daginn eftir kemur mín í Sportaran og kvartar undan því að buxurnar væru í gulrótarsniði. Það var axsúlí punkturinn í veröldinni hennar Inger. Hjá mér var þetta meira að þetta er örugglega eina fyrirtækið þar sem að ef að þú biður um að fá að tala við yfirmanninn þá er þér annað hvort tilkynnt að hún þurfi að klæða sig og svo komi hún að tala við þig eða þá að þér er vísað inn á deildarstjórann þar sem hún stendur kófsveitt í náttfötunum með málningarpensil í annarri og GSMinn í hinni og spyr þig með saklausu brosi á vör hvað hún geti eiginlega gert fyrir þig. Þér verður svo mikið um að þú kaupir tvöfalt magnið af röngum hellum og steypu í hús sem að þú ert ekkert að fara að byggja.
Svo að mundu það: Ef að þú sérð konu í náttfötum öll haugadrullug upp fyrir haus og gangandi um. Þá þarf ekkert endilaga að vera að eitthvað sé að eða að hún hafi sloppið af Kleppi. Heldur er þetta örugglega Inger systir.
Dagur, ó guð eitthvað ....
Jæja. Allavega er miðvikudagur í dag og æfing (eins og alltaf) í morgun. Vaknaði fersk og af stað mætti Lottu inn í klefa sem er eitt og sér óvenjulegt vegna þess að hún er alltaf komin á fullt þegar ég mæti. Hún var nú eitthvað súr í morgun – fór seint að sofa blessunin og það tók aðeins fram á æfingu fyrir hana að vakna.
Annars kom það í ljós af hverju Inger er búin að vera phsyco í nokkrar vikur. Argandi og gargandi með svo stuttan þráð að hann var að verða ósýnilegur. Heldurðu ekki að hún sé svona rosalega járnlítil. Venjulegt fólk á að mælast um 200 en hún er 6. Já ég endurtek 6. Hefði hún skorið sig í puttann hefði það þýtt blóðgjöf. Hún var spurð hvort að hún væri ekki búin að vera þreytt og hún vildi nú ekki kannast við það. Við Lotta könnumst aftur á móti mjög vel við það. Sko að Inger sé þreytt. En Inger verður sem sagt á járnkúr næstu tvo mánuði og batnandi mönnum er best að lifa.
En heldurðu ekki að Inger hafi mætt með myndavél í morgun. Og skellti sér í það að taka svona before myndir. Ég pantaði ekki tíma í þetta. Kl. 7 að morgni til eftir æfingu í æfingatopp og g-string. Not my finest moment. Og svo eins og allir vita þá er ekki til orðið nei hjá Inger. Manni var stillt upp við hvítan vegg og tekin svona “muggshot” mynd af manni - bara á nærfötunum. Vill ekki endurtaka þetta. En bara Inger myndi detta það í hug að vippa upp myndavél í klefunum í Sporthúsinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Stundum held ég að það hafi eitthvað skemmst í ennisblaðinu á henni þegar hún datt af veggnum þarna um árið. Það er stundum eins og stopparinn hennar sé ekki eins virkur og hjá okkur hinum. Og finniði eina manneskju sem ekki er sammála mér í því.
Dagur 14 - Jibííí og búhúúúúúÉg fór í fitumælingu og svoleiðis gaman í gær og fékk fínar fréttir. Búin að missa 1 og 1/5 % fitu þótt að ég búin að þyngjast um 1 og 1/2 kg. Á meðan ég er að tapa fitu er mér meira sama um vigtina. Verð að segja það. Verð bara að fara að standa mig aðeins betur í brennsluprógramminu og þá kemur þetta.Fór í Sportrann í morgun og heim úr vinnu í hádeginu. Fór svona svakalega í bakinu að ég get ekki hreyft mig. Ætli ég verði ekki heima á morgun líka - þetta lítur ekki allt of vel út núna allavega. Kannski verður bara nóg að fara í heitt bað í fyrramálið og lyfja mig vel.En annars er það að frétta að Inger er að fara á límingunum. Það er auðsjáanlega klikkað að gera hjá henni og við öll hin eigum alveg að þjást með henni. Ekki það að ég hafi ekki samúð Inger mín, en ég vill byrja daginn minn á öðru en rifrildi og öskrum. Vonandi fer hún nú að fá einhvern svefn svo að við hin getum hætt að tippla á tánum.
Dagur 12 - Og konan bar þyngist...Er nú alveg að fá nóg af þessu. Er að fara í mælingu á morgun og þyngdist um 300 g síðan í gær. Hvernig er þetta hægt??? Ég er stillt og þæg stelpa sem að fer á æfingarnar og geri það sem til er ætlast af mér og þyngist samt. Er ekki alveg að ná þessu. Það verður gaman að sjá hvað gerist á morgun - NOT!!! Er bara að fá nóg af þessu kjaft.... Ef að þetta fer ekki að þokast í hina áttina þá verð ég að gera eitthvað annað drastískt. Ég ÆTLA að grennast í sumar og ég ÆTLA að vinna!!!
Dagur 11 – Erfið helgi
Ég sleppti úr tveimur dögum sem að útskýrist hér með. Tók einn drykkjudaginn út á laugardaginn og var nær dauða en lífi á sunnudaginn. Fór sem sagt í partý hjá Alexandro og það var svona líka mikið fjör. Hefði kannski ekki átt að vera svona öflug í melónubollunni. Svo fórum við stelpurnar (Lotta, Inger, Anny, Helena 18, Kata, Gulla og tvær vinkonur þeirra) á Celtic Cross þar sem að var sungið og trallað. Lotta að vísu fór þá beint heim. Svo týndust þær ein af annarri heim þangað til ég og Anný vorum þær einu eftir. Og áður en ég vissi af var klukkan orðin 8 – já, ég sagði átta – og ég að staulast inn til mín. Guð sé lof að Hanna var ekki vöknuð. En sem sagt, fyrst að maður fær ekki nema 3 drykkjudaga í sumar þá er eins gott að nýta þá vel.
Svo var það ræktin í morgun. Mæling á miðvikudaginn. Hlakkar ekki til – var aftur búin að þyngjast í morgun. Veit ekki hvað ég á að gera. Þetta verður að fara að hreyfast eitthvað. Er að vísu farin að sjá mun á maganum og svona en samt, - að þyngjast???
Dagur 8 – Vá hvað það var gaman í gær
Tónleikarnir með Duran Duran í gær voru bara æðislegir. Rosaleg stemning og alveg hverrar krónu virði. Væri til í að fara á aðra tónleika í kvöld. Þeir voru víst rosa ánægðir líka með okkur íslendinga. Tóku fleiri aukalög en til stóð á prógramminu (við hérna í vinnunni erum með loftræstikerfið í höllinni og það var einn að stýra þessu þarna í gær) og voru rosalega ánægðir víst. Ég veit það allavega að ég er á leiðinni að kaupa mér tónlistina á tilboði í Skífunni í dag. Ég er bara aftur orðin Duran Duran fan no. one.
Ég sá þarna æfi mína renna fyrir augum mér. Allavega fólkið sem að hefur verið þar á einhverju tímabili. Þarna var hálfur minn árgangur í Breiðholtsskóla og nánast allir sem að ég var með í FB. Þannig að nostalgían náði manni á öllum sviðum þarna. Þarna voru líka Ragna og Alexandro. Alveg á útopnu og hann farinn að fækka fötum og allir orðnir vel blautir. Innan og utan.
Og svona út frá heilsuátakinu þá var þetta líka brennsla dauðans. Lögðum vel frá og gengum (ef þú kallar að skokka á eftir manninum þínum af því að hann gengur og hratt, að ganga) niður eftir. Og svo dansaði maður og söng eins og brjálæðingur í 2 klst í 27 stiga hita og svitnaði eins og múkki. Og þá vara að hlaupa á eftir Sigga upp í bíl. Þegar ég kom heim var ég orðin svo ofþornuð að það dugði ekkert minna en 1 líter af vatni til að slökkva þorstann. Svo sló manni niður allsvakalega og ég skalf og nötraði af kulda. En það þýddi náttúrulega ekkert að fara að sofa strax heldur skreið ég ekki upp í fyrr en kl 1:30. En var sleppt æfingu í morgun?? Nei!
Var mætt í Sporthúsið kl 6 og gerði minn hluta takk fyrir. Rosalega gaman. Við systurnar komumst samt að því að okkur vantar nokkra masókista í hópinn. Það er svolítið erfitt að vera hópur af bara sadistum. Enginn til að taka við. Veruð að leysa þetta einhvernvegin.