miðvikudagur, janúar 28, 2004

Hæ aftur! Prufaði Care Bear testið. Bæði ég og Inger komum út sem ...
Gay Bear
Gay Bear


Which Dysfunctional Care Bear Are You?
brought to you by Quizilla

...ógó fyndið. Sjáiði hvað við erum happy go lukky?

Góðan og blessaðan...

Loksins Loksins! Bakið að batna og brosið komið aftur. Get horft fram á við með von í hjarta um að fá að snúa mér aftur að LB minni (þið vitið...). Er nefnilega að grotna niður svona hreyfingalaus.

En það er sama vandamálið hjá mér með barnapíuna mína eins og ég veit að það er hjá fleirum. Vinna, líkamsrækt ( sem nota bene tekur 3 klst+ hjá sumum), o.s.frv.

Hvað er þetta svo líka hjá karlpeningnum??? Við konur förum í "leikfimi". Alveg sama hvort við förum í kikkboxing eða jóga, þá förum við í "leikfimi". Hefurðu einhvern tíman heyrt karlmann tala um að "fara í leikfimi"??? Nei, hélt ekki! En maðurinn minn segir alltaf: Ég kemst ekki í ræktina í fyrramálið hún er að fara í leikfimi. Svo horfir hann á mig og roðnar þegar hann áttar sig á því að ég heyrði í honum. Er búin að minnast á þetta við hann nefnilega.

Bara svona munin á orðum til að lýsa athöfnum hjá hvoru kyni fyrir sig. Við erum með börnin okkar þeir passa sín börn. Við förum í leikfimi þeir í ræktina. Við nöldrum þeir, hvað ?... ...ekki (sure! nefnið mér einn). Við erum tilfinninganæmar og uppstökkar en þeir jafnaðargeðið uppmálað (hafið þið séð karlmann sem að kemst ekki í golfið eða hitta vinina eða horfa á fótbolta eða bara hvað sem er á þeim tíma sem að hann vill??? Nei, bara spyr).

En nóg um annmarka hins kynsins í dag.

Orð dagsins: Enn og aftur æðruleysi. Muna þetta! Eina leiðin til að enda ekki með því að ærast.

föstudagur, janúar 23, 2004

Þetta er sá sem að ég á að giftast samkvæmt þessu prófi. Ekki viss en ....

kannski að hann myndi duga. Hvað finnst þér???


You are going to marry Brad Pitt. He is always
friendly to anybody he ever meets and he is
very talented as an actor. He is also very
sincere and friendly. He will respect you until
the day he dies. Congrats!!


Which male celebrity are you going to marry? (10 results that have pics!)
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Jæja á að vera komið nýtt comment system og því bið ég ykkur (eða bara þig) velkomin.

miðvikudagur, janúar 21, 2004

legolas
Congratulations! You're Legolas!


Which Lord of the Rings character and personality problem are you?
brought to you by Quizilla

Og svona með því - þá var ég Legolas eins og Lotta!

I am a Cancer.
(Also known as "Crab")
My Horroscope starts like this:
" A failure by definition, a Cancer is both a conservative and an opportunist, stuck in a constant state of self-reflection. Nothing and no one is capable of changing his mind, but he loves to argue, just to make fun of his opponent and look better in his own bulging eyes. " (Read more | Find yours)

Er ekkert sérlega ánægð með þessa stjörnuspá, en...

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Loksins – loksins komin aftur!

Er búin að vera heima í viku vegna brjósklos í mjóhrygg. Voðalega gaman! Er enn þá að drepast en er ekkert smá ánægð að vera komin í vinnuna aftur. Mannskemmandi að vera svona heima og geta ekki gert neitt nema að finna til.

Og ekki nóg með það heldur var Siggi líka svolítið mikið heima þessa vikuna vegna snjós (finnst ykkur þetta vera fair – það mætti halda að hann væri í barnaskóla). Sumir myndu eflaust hugsa sem svo “rosalega var hún þó heppin að hann hafi getað hjálpað henni heim á meðan hún var svona í bakinu!” ...... ...Rosalega er langt síðan þú varst í sambandi. Þið hinar vitið hvað ég meina! Hangið heima, ekki sett í svo mikið sem eina þvottavél né uppþvottavél hvað þá að það sé tekið út úr þeim. Sofið út í eitt og ekkert farið í búð nema það væri beðið sérstaklega um það. Og svo þurfti ég að fara sjálf að versla stórt á föstudaginn af því að við vorum að svelta heima vegna þess að MATUR komst yfirleitt ekki á listann í MATvörubúðinni!!!

Haldið þið ekki að hann hafi svo farið á æfingu á þriðjudaginn og gekk eitthvað aðeins fram af sér og fékk harðsperrur. BIG F...... DEAL. Nei, nei, hann fór á aðra æfingu á miðvikudaginn (eftir að hafa legið og vælt allan daginn) og kom svo heim af henni, liggur við í hjólastól. “Ég hitti vin vinar míns á æfingunni áðan og hann er sjúkraþjálfari og hann sagði að þetta gæti verið að ég hefði rifið einhverjar af vöðvafestunum í handleggjunum á mér í gær og það væru verkirnir!” Ertu að grínast í mér eða??? “Hann sagði að þetta væri rosalega algengt og að fólk hreinlega misskildi þessa verki fyrir harðsperrur!!!” Uppglennt augu og svipurinn spurði mig bara; finnst þér þetta ekki alveg rosalega merkilegt? Hvað haldið þið að hann hafi gert mikið síðan??? Akkúrat – rétt hjá ykkur. EKKERT.

Hann gat ekki einu sinni haldið á dóttur okkar inn í herbergið sitt (hún sofnaði inni hjá okkur) á laugardaginn! (Ath! Á laugardaginn!!! – Verkirnir eru eins og harðsperrur!!!) Ég átti að gera það, sem ég og gerði. Umm... ...brjósklos á tveimur eða harðsperrur, spurning hvort vinni “ég finn meira til” leikinn. Læt ykkur um að dæma.

Ohhh (nánast fullnægingar stuna) Hvað það er nú gott að fá útrás svona aftur!!!

fimmtudagur, janúar 08, 2004

Góðan dag góðir hálsar!

Því nú ver og miður er umræðuefni dagsins svolítið tengt hálsum eða allavega munnum. Því að ég fékk póst í dag sem að innihélt svolitla sögu um 14 ára gamla stúlku og kynni hannar af Mótorhjólaklúbb í Kópavogi sem að Sverrir tatto, er meðlimur í. Og ef að þið hafið lesið hann þá er þetta ekki viljandi orðaleikur. Málið er það að í fyrrnefndum pósti er sagt frá þessarri 14 ára gömlu stúlku sem að villist inn í þennan klúbb einhvern vegin og "kaupir" sér spítt með totti á karlmönnum í partýi þarna.

Mín spurning er þessi: Er einhver hissa? Er þetta í alvöru eitthvað nýtt undir sólinni. Það sem að ég held að sé fréttnæmast við þetta að fólki finnst er að Sverrir tatto kemur við sögu. Ef að hans nafn væri ekki tengt þessu væri þetta ekki einu sinni til umræðu nema í mjög lokuðum hóp. Það finnst mér vera sorgin.

Málið er það að Sverrir er búin að "kaupa" sér kornungar stúlkur í mörg ár og af hverju ætti það að koma einhverjum á óvart að hann umgangist fólk sem að hefur gaman af þessu líka. Hann tatto-aði stelpur (og þá meina ég krakka) sem voru blindfullar sem að svo tottuðu hann, eða meira, í staðin og fannst það sko ekki tiltökumál.

Punkturinn sem að mér finnst að ætti að vera í þessarri sögu (en finnst hann ekki vera) er sá að þessarri stúlku fannst ekki hún vera að selja sig af því að hún þurfti "bara" að totta einhvern gaur til að fá línu. Ungum stúlkum finnst almennt þær ekki vera að selja sig ef að þær skipta á þessu og einhverju sem að er ekki peningur.

Þessir menn eru náttúrulega og verða alltaf kríp ég er ekki að segja annað, en gildi stúlkunnar á sjálfri sér og samfélaginu eru líka smá skilaboð. Hún var ekki neydd. Oftast þarf ekkert að neyða þessa krakka - það er allt í boði. Ef að það á að hneikslast á einhverju í sögunni þá verður líka að segja ;af hverju vissi stúlkan ekki að hún væri í vændi? Af hverju var ekki hringt á lögguna þegar hún 14 ára skilar sér ekki heim í 3 daga? Af hverju er svo hótað að svifta vasapeningum og kvöldútiveru? Daaaa!!!! Kemur eitthvað annað til greina. Nei ,við skulum bara segja; ógó , ógó kallarnir ( sem þeir eru) en ekki ; Hvar í anskotanum voru foreldrarnir að gera í þessa 3 fokking daga???

Sorrý en ábyrgðin er báðumegin í mínum huga. Mín skoðun!

miðvikudagur, janúar 07, 2004

Jæja - Happy New Year!!!!

Knús og kossar til ykkar allra.

það er nú orðin svolítill tími síðan ég spjallaði en við skulum alveg hafa það á hreinu að ég byrjaði,stundaði og masteraði þagnarbindindisleikinn. En nú hefur semsagt mesta gella vestan... hmmm.... kannski tími að skoða þetta aðeins.

Jæja haldið ekki að konan hafi rústað á sér bakinu á seinasta FÍFÍS móti. Ég meina það er að drepast og er viss um að öll 3 losin í bakinu fóru á flótta undan liðunum. Skakklappast um eins aumingi. ok,ok,ok. Ég veit er að vera aumingi núna - ekki orð meir um það.

Áramótaheit! Léttast um 10 kiló á 100 dögum. Það þýðir aðeins 1 kíló á hverjum 10 dögum. Og ég er viss um að ég ráði við það. Samt verð ég nú að viðurkenna að það er líkaminn eða réttara sagt fatastærðirnar sem að mér finnst skipta meira máli. Vill niður um allavega 2 númer.

Jæja, þá er hægt að hanka mig á þessu eftir rúma 3 mánuði. Stilliði klukkurnar - og veriði vissar að ég mun sigra. Minn tími er kominn -- heh humm vonandi.

Memo to me! Sjálfstraust - finna'ða! Á það alveg til - það er bara eins og erfiður unglingur. Annað hvort sofandi eða þá úti með Guð má nú vita hverjum. Hvað getur maður gert???

En enn og aftur: Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir allt á því gamla. XXX