þriðjudagur, desember 23, 2003

Gleðileg jól!

Þar sem að ég verð mjög líklega ekki í bloggstuði um jólin þá vildi ég bara henda inn smá kveðju á þá sem að læðast hér inn (hvort sem að það er viljaverk eða óvilja).

Vonandi eigið þið gleðileg jól og enn betri áramót ;-).

Knús og kossar,
...

p.s. Survivor rules!!!

föstudagur, desember 19, 2003

!!!!ÞAÐ ERU 5 DAGAR TIL JÓLA!!!!

fimmtudagur, desember 18, 2003

Rétt upp hend sem vill fara að versla fyrir mig um helgina???

Hvað er þetta?? Er ekki einu sinni hægt að gera manni smá greiða? Þetta er án efa það sem að mig kvíður mest fyrir á komandi helgi. Fara fyrst í Bónus þar sem að ég byrja með aukahjartslögin (sem að eru nota bene stress tengd - og ég búin að vera með meira og minna ALLAN desember) um leið og ég sé helvítis grísinn. Hvað er þetta fyrir logo??? Bleikur feitur sparíbaukur með sólheimaglott. Það á að vísu við að tvennu leiti, fyrst þeir náðu nú að nurla svolitlu af því sem að við eyðum hjá þeim, Bónusfeðgarnir, og svo í öðru lagi látum við leiða okkur eins og svín til slátrunar þangað inn um hverja hátíðar.

Finna körfu. Mjög líklegt að það sé enginn á lausu þannig að eina leiðin til þess að verða sér út um eina slíka er að gerast stalker fyrir utan Bónus. Er eitthvað meira niðulægjandi. Það kemur einhver út úr búðinni, með kerruna svoleiðis sligaða af mat og rembist við að koma henni á áfangastað (merkilegt hvernig allar stéttar halla fyrir utan þessar verslanir þannig að það er ekki í valdi venjulegrar manneskju að stýra þessu). Ég ákveð eins og veiðimaður "þetta er kerran mín" og af stað. Ég aksúalt ELTI fólkið þangað sem að það er að fara. Svo stend ég og horfi á það afferma kerruna og er til í að labba "óvart" fram hjá á því augnabliki sem að hún losnar. Jafnframt þarf ég að huga að því að enginn annar sé líka að fara að fanga þessa kerru og að greyið fólkið taki ekki eftir því að ég sit um það. Mjög snúið.

Svo er það að fara inn og versla. OK. Inn og um leið og komið er með annað framhjólið á kerrunni inn er hámarkshraðinn kominn í 30cm/klst. Ok ekki klst en allavega á 10 mín. Svo silast ég áfram með körfuna og reyni að henda því sem að augað minnir á ofan í kerruna um leið og ég sé það (listinn sem að ég gerði er út í bíl). TVEIMUR klst senna er ég í röðinni AFTAST í búðinni. ...

...4 klst síðan ég kom inn í búðina og ég fæ að borga.

Þegar ég er komin út í bíl er listinn fundinn og merkt við. C.a helmingurin verslaður. Ég þarf að fara aftur. Anskotinn! Fer í Nóatún - mér er slett sama þótt að hún sé dýrasta búðin á landinu. Ég veit það að ef að ég þarf að fara inn aftur þá fer ég að grenja. Ég bara veit það.

Ég vill ekki vera svín.

þriðjudagur, desember 16, 2003

Alveg ótrúlegt en satt þá er ég (enn þá) on scedual með jólashitið - nei, ég meina jólalistann. Ef að þetta heldur svona áfram þá mega jólin bara koma - ég meinaða. Ég skal meira að segja halda hurðinni opinni fyrir þeim og allt. Er komin með basicið. Jólin handa börnunum eru komin og restin má alveg klikka. Búin að gefast upp. Þetta er kennt í æðruleysisbæninni:

Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem að ég fæ ekki breytt ( ok - get það ekkert mál það er ýmislegt sem flokkast undir það - ekki fleiri klst í sólahringnum þ.a. maður kemst ekki yfir það sem að maður þarf að gera s.s. þrífa versla allt inn fyrir alla, skreyta almennilega, baka fimm sortir af smákökum (ok eða þá bara eina)).

Kjark til að breyta því sem að ég get breytt ( vorum við ekki að fara yfir þetta? það er afskaplega lítið sem að er eftir - kannski, pakka inn jólagjöfunum sem að ég er búin að kaupa fyrir krakkana. Sko fann eitthvað).

Og vit til að greina þar á milli. ( Hef það - allt nýtt sem að fer á jóla to-do listan fer á æðruleysis-megin og allt sem að er nú fyrir á honum fer þangað líka)

Have a very nice day!

föstudagur, desember 12, 2003

Góðan föstudag!

Föstudagur - föstudagur. Föstudagur- föstudagur já og föstudag.

Hafiði það gott um helgina!

fimmtudagur, desember 11, 2003

Cool fimmtudagur! Legg til að hann verði kallaður það héðan í frá.

Fimmtudagar eru fínir. Stutt í helgina og fljótir að líða. Föstudagar geta oft verið svolítið þreytandi af því að maður vill komast af stað í helgarfílinginn (sem að í mínu tilfelli er að þrífa, hugsa um börn og taka til eftir alla hina - en...). En fimmtudagar eru cool dagar. Fljótir að líða og fullir af von og lofi um góða helgi. Svo er það allt föstudeginum að kenna ef að planið var ekki nógu gott til að standa undir væntingum.

Annars er þetta allt í dag, bæ.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Jæja!

Núna er komin harka í þetta! Bloggsíðukeppnin er hafin og væntanlega líður ekki á löngu áður en allir verða búnir að ganga alveg heilu og hálfu kílómetrana yfir strikið í stigum fyrir síður annarra. Ég veit fyrir víst að það býr "smá" keppnisskap í brjóstum þessarra kvnena sem taka hér þátt svo að þetta verður örugglega mjög fróðlegt að fylgjast með. Set slóðina hér til hliðar svo að forvitnir geti lagt sitt í púkkið.

Ég er ánægð með að Flúðaselsgengið hafi verið slegið af sem dómarar. Það er ánægjulegt að vita til þess að einhver þarna er með fullu viti og fær um að taka ákvarðanir byggðar á einhverju sem að er ekki bara tekið úr lausu lofti (Gulla ég er að tala um þig)... ...(þ.e.a.s. þú ert sú með vitið - fékk allavega póstin frá þér um dómarabreytingar). Gulla fær eitt stig bara fyrir það.

Annars er það bara að frétta að ég klikkaði á Survivor bíóferðinni. Var ekki að meika það í gærkvöldi. Er að leka niður úr þreytu og vill svefn en er að fara í hárreddingar til I í kvöld. Og U Blíf Me það eru reddingar. Veitti ekki af að fara í ljós líka. En er samt geðveikt falleg.

mánudagur, desember 08, 2003

Hvernig var svo helgin? Við vitum svo sem svarið hjá kvennaathvarfinu í Flúðaselinu. En hvað með hina?

Ég gerði ekkert sem neinn annar hefur áhuga á (bara svona heimilis-shit) og ætla ekki að drepa ykkur á því.

Annars var ég óánægð með Idolið á föstudaginn. Vala söng sig út úr þessu engin spurning en Sessí (heitir hún það ekki)? Heyrði enginn í strákunum Jóni og Helga (hann var verri - viðurkenni það). Veit að hann er sætur og hefur "sjarma" en í alvöru fólk. Er þetta ekki keppni um það hver er besti söngvarinn??? Hlusta fólk, ekki bara skoða.

En Survivor í kvöld - og svo bíó - heyrði ég! Gaman gaman. Ef ég fer í bíó þá fer ég barastaa 2var í mánuðinum (ætla á seinustu í Lord of the Ring) sem að gerir - ... ...... ...

...er að telja ... ... ......

...2var á árinu. Fer rosa mikið í bíó. Ég er alltaf að sjá það meir og meir á þessu blogg dæmi að ég er sorgleg manneskja sem á ekkert líf.

Nei annars, er bara falleg!!!

föstudagur, desember 05, 2003

Jæja komin helgi og vonandi allir kátir.

Idol í kvöld - Fyrsti alvöru (í beinni) þátturinn. Ætli maður horfi ekki. Annars hef ég alveg nóg að gera. Ekki alveg að sjá þetta með að vera búin að öllu snemma fyrir jól. En jólin koma víst hvort sem maður er tilbúin eða ekki.

Ekkert sérstakt plan um helgina annað en að reyna að komast yfir sem mest á þessum tíma.

En samt... ....listinn:

1. Ekki verða geðveik. Þetta hefst.
2. Ekki verða gaðveik. Þetta hefst. Ertu viss?...
3. Ekki verða gaðveik. Þetta hefst. Þú ert eitthvað biluð!!!
4. Ekki verða gaðveik. Þetta hefst. Ertu að grínast í mér??? Veistu hvað þú átt eftir að gera?????
5. Ekki verða gaðveik. Þetta hefst... ...ekki!

En gangi þér samt vel með þitt!

Ég meina það! Í alvörunni. Þú getur þetta. Þú ert klár og fyndin og ....

Æi, Guð hjálpi okkur öllum.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Góðan daginn - góðir hálsar!

Var að spá í jólunum. Nýtt stress komið í dæmið. Hvenær kemst maður í Sporthúsið. Fann opnunartíman og auglýsi hér með eftir einhverjum á einhverjum tíma í eitthvað á þessum rauðu dögum. Ef að þú ert gjaldgeng í hreyfingu og slökun (pottur og gufa innifalið þ.s.e. frí) þá "talaðu við mig".

<------------ SPORTHÚSIÐ!

mánudagur, desember 01, 2003

Hef ekkert að segja - nema að ljúka því af áður en einhver annar gerir það!

Banani og kaktus!