mánudagur, febrúar 14, 2005

Ekki alveg að standa mig!

Það er nú ekki búið að ganga neitt ofboðslega vel að komast í ræktina í seinustu viku. Fór á hmmm? Fimmtudaginn eftir að hafa ekki farið síðan á mánudag. Siggi var nefnilega veikur og eins og allar konur vita sem eru nógu vitlausar til að eiga mann þá eru þeir við dauðans dyr ef að þeir fá svo mikið sem kvef. Þannig að ég varð að græja börnin á morgnana. Svo á fimmtudeginum fór ég í sportarann og var búin að tala við minn um að klæða dömuna og hjálpa Eric með nesti, svo skildi ég koma um átta og keyra hana á leikskólann. Þegar ég kem heim mæti ég Eric á leiðinni í skólann og fer svo inn þar sem daman á heimilinu er að leika sér, komin í fötin en ekki mikið meira en það (klætt sig sjálf) og maðurinn minn sofandi uppi í rúmi. Hann leit upp og tilkynnti mér það að honum svimaði svo að hann gæti þetta ekki og lagði höfuðið aftur á koddann og sofnaði.

Dæmi: Ég var komin með streptakokka sýkingu í hálsinn og um 40 stiga hita. Skalf og nötraði og svitnaði heilu fötunum og sá ofsjónir ( svona liti). En ég fór og náði í Hönnu á leikskólann gaf þeim að borða og kom þeim svo í rúmið. Svo þegar Siggi kom heim var ég svo veik að læknirinn þurfti að koma heim – ég gat ekki farið á vaktina.

Munurinn : Ég get verið veik og börnin mín þurfa ekki að róta í ruslinu eftir mat. En hann getur leyft sér að sleppa því að hugsa um þau ef að honum svimar. Stingdu hausnum á milli hnjánna á þér og andaðu djúpt og hugsaðu um börnin þín!!!

En þetta er vikan sem að allt smellur. Fór í morgun, að vísu á vigtina líka og hún er ekki vinkona mín í dag. Var að byrja á blæðingum (afsakanir afsakanir) athuga hvað hún segir aftur í næstu viku. Annars verð ég að fara að skrifa aftur í matardagbók. Gerði það um daginn og þá gekk þetta fínt svo hætti ég að skrifa og þá fór ég að svindla. Skrítið hvernig þetta heldur aftur af manni þegar það sést svart á hvítu hvað maður borðar.

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Líkamsrækatarfrík!!!

Hélt nú aldrei að ég yrði ein af þessum manneskjum ( og lít svo sannarlega ekki út fyrir það) sem að tek sportið helst til alvarlega. En núna er það komið. Nú á að fara að æfa með Lottu 2var í viku og ég sjálf 3var. Sem sagt er mín í Sporthúsinu 5 sinnum í viku kl.6. Á nú eftir að sjá hvernig gengur en þetta þýðir að ég hitti manninn minn á morgnana um helgar. Annars er hann að vinna fram undir miðnætti (ef ekki fram yfir það) og ég ekki heima á morgnana.
Það verður líka spennandi að vita hvernig han plummar sig með að sjá um krakkana einn alla morgna. Fullt af skemmtilegum hlutum þar.


miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Svindlari svindlari...

Búin að vera lítill ljótur svindlari í átakinu mínu síðan á sunnudaginn. Ekkert verið að telja kaloríur, ekkert farið í ræktina og allt í vitleysu. En núna ætla ég að skríða á vagninn aftur ( ef að ég kem mínum feita upp á hann) og það verður ekkert gefið eftir núna. Nenni ekki lengur þessu lærapokavandamáli o.fl. Það er samt svo fyndið að þetta er aldrei neitt vandamál nema þegar ég er nálægt spegli. Það er alveg stórmerkilegt hvernig ég skynja mig enn þá sem 53 kíló eins og ég var þegar ég var að dansa og í topp formi. Svo kemur kafteinn “jú-sukk” spegill og ég er minnt á það að ég er 31 árs gömul kelling með kellingakropp. Selló allsstaðar og keppi á stöðum sem ég kann ekki að nefna. Svo finnst mér ég vera langflottust – þarf bara að matsa ytri skelina við innri. Hljómar auðvelt – er það ekki???