fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Jæja !!!

Ég hef verið ásökuð um það að vera einungis helgabloggari og það getur bara verið rétt. Þar með er ég ekki að viðurkenna að það sé að vera eitthvað verri bloggari en hver annar. Þetta er bara spurningin að tala bara þegar maður hefur virkilega frá einhverju að segja en ekki bara segja allt sem að flýtur í gegn um hausinn á manni ( já – við vitum allar hver á þetta ..)

Annars fannst mér tími til komin að skella upp helgarplaninu mínu – bara svona vegna þess að ég veit hvað þið hafið gaman af – ykkar líf er svo æðislegt í samanburði:

Föstudagur:
1. Vakna kl 5:30
2. Vakna kl.5:36
3. VAKNAAAAAA ... ... ok!
4. Skvass kl 6:00 og hamast ( eins og það sé það sem að maður á að vera að gera eldsnemma um morguninn á föstudegi fyrir svona helgi).
5. Vinna ( viljið þið í alvöru fá útlistingar? Nei, ég hélt ekki. So on we go...)
6. Kl.16:30 Komin tími til að fara heim og nú fyrst byrjar ballið. (Nú verðurðu að lesa hratt því að þannig verður þetta – tilbúin?)
7. Út í bíl.
8. Heim.
9. Taka upp úr íþróttatösku (ojj).
10. Færa það sem á að fara með í bústaðin í hina töskuna.
11. Skipta um föt.
12. Koma mér út og af stað til Inger. (Siggi keyrir mig - Guð má vita hvað það tekur langan tíma að ná honum út í bíl.)
13. Og.....
14. Bíða...... ........ ..................................................
15. Vitum þetta allar – það er nefnilega ekki BARA ég sem að er stundum sein. Nei nei nei, aldeilis ekki ;).
16. Og svo fara af stað. (Við skulum samt hafa það á hreinu að það að fara af stað í stelpuferð í bústað heila helgi er ekki það einfaldast sem að maður gerir. Maður hefði getað haldið það. Setja töskurnar í bílinn – setjast upp í bílinn og af stað. Nei, þetta gerist ekki svona. Eins og við getum verið með allt á hreinu sem mömmur þá fer ekki mikið fyrir skipulagningunni þegar við erum margar saman.)
17. Fara yfir tékklistann – er allt með!
18. Vínið (sér tékklisti – klárlega)!
19. Ná í þær sem að þarf að ná í.
20. Koma þeim fyrir líka í bílnum.
21. Af stað!
22. Nei – bensínstöð og fylla bílinn – ekki hægt að gera það áður? Nei það myndi actually spara tíma og við stelpurnar erum sko ekkert fyrir það.
23. Svo er haldið af stað. Og kl orðin c.a. ...... ... hvað á ég að segja 19:55
24. Lögðum þó af stað fyrir átta – fínn tími.

Eigum við nokkuð að fara í meira???

Memo to me: What are you thinking??? Veistu hvernig verður að koma heim á sunnudaginn??????? Orðin: Ofurliði og uppgjöf.

Góða helgi!!!

föstudagur, nóvember 21, 2003

Jæja komin helgi og rétt eins og venjulega nóg að gera.

-Ná í Hönnu
-Fara í búð
-Fara heim og þrífa (af því að ég hef ekki tíma fyrir það það sem eftir er af helginni)
-Þvo svona eins og milljón þvottavélar (finnst að það eigi að vera þáttur sem að heitir viltu vinna milljón þvottavélar og það mega bara karlar keppa um "vinningin" og svo sá sem að svarar FÆSTUM spurningum hann "vinnur" vesenið. Og við konurnar þeirra eigum að skrá þá)
-Sofa
-Vakna
-Græja krakkana
-Fara í Jólaföndur í skólanum hjá Eric
-Koma heim og myndast við að taka sumarblómin (já, ég sagði sumarblómin) af svölunum hjá mér og setja upp jálagrenið og seríurnar ( og áður en þið missið ykkur - þá er ég ekki í bænum helgina þar á eftir sem að er fyrsti í aðventu.
-Græja mig og fara í afmæli - hmm segjum ekkert meira um það......
-Sofa
-Vakna
-Græja krakkana
-Ganga frá í íbúðinni (Siggi var einn heima með krakkana í gær).
-Halda áfram þessu jólaskreytingarstússi því að ég hef ekki tíma í vikunni að gera þetta. Samt hitta hinar út af jólagjöfum á sunnudagskvöldið.

ATH!!!! Auglýsi eftir - aukadegi um helgar fram að jólum. Má þarfnast lagfæringar og sæki hvert sem er. Bara sem að hann sé ekki algerlega ónýtur þá tek ég hann. Áhugasamir hafið samband. ;)

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Góðan daginn góðir hálsar!

Er í pínu pirruðu skapi þessa dagana. Ákveðið fólk fer í taugarnar á mér - nefni engin nöfn í því samhengi. Og er farin að þrá frið og ró - bara svona eins og einn ans.... dag áður en jólin koma. En verður örugglega ekki að ósk minni.

Ég þarf að fara í box því að mig virkilega langar að kíla einhvern. Bíður einhver sig fram????

mánudagur, nóvember 17, 2003

Jæja!!!

Lifði af helgina (barely). Fullt af strákum hjá Sigga (var eina stelpan - hljómar spennandi - en ekki svo mikið... ...trust me). Þeir fóru í bæinn og ég fékk að taka til eftir þá. En Siggi skemmtir sér vel. Það skiptir víst máli á afmælisdeginum.

Survivor í kvöld. Ef að fucking Jon fer ekki í kvöld missi ég alla trú á þessu liði. Þá á hann bara skilið að vinna þessa anskotans milljón ef að þetta lið ætlar að skemma þetta fyrir manni með því að hann fari í pirrurnar á manni. Krossleggjum fingur og vonum annars veit ég ekki hvernig fer með mætingu mína næsta mánudag!!!

Inger og Lotta klikkuðu á ræktinni aftur í morgun. Föstudaginn og í dag - borið fyrir sig magaveiki og e-ð. Held að þetta sé nú bara einhver aumingjaskapur. Já - ég sagði það. Annað eins hef ég nú fengið að heyra það þegar ég hef - uhumm - ekki getað mætt vegna óumflýjanlegra orsaka, sem að ég gat ekkert ráðið við. Hihihi. Eða svoleiðis. Veit ekki hvort ég hafi samt efni á því að segja neitt.

Orð dagsins: æðruleysi (Survivor) og umburðalindi (ræktin) hehe.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Má ekkert vera að þessu!

Hef allt of mikið að gera núna. Þarf að fara og kaupa liti fyrir okkur stelpurnar svo að við getum textíllitað um helgina jólagjafir. Þarf að finna e-ð í afmælisgjöf handa Sigga (nota bene hann á afmæli á MORGUN). Þarf að fara að versla og heim til mín þar sem að bíður eftir mér drasl sem að ég þarf að taka til eftir Sigga. Hann er nefnilega búinn að vera heima í dag með stelpuna okkar - frí á leikskólanum. Þið skiljið!

Svo þarf að taka til hendinni og gera klárt fyrir afmælið á morgun. Ættingjar fyrripart og vinir hans um kvöldið. Það hefur nú undið upp á sig bara seinasta sólahringinn. Fólk farið að fljuga heim frá útlöndum til að vera viðstaddir þann merka áfanga að Siggi verði þrítugur. Úff...

Svo þrífa etir allt á sunnudag!

Og ég er að verða veik. Kvefuð og allt!

Memo to me: Mér hlakkar til mánudagsins. Fletta upp í orðabók orðinu frík;) það er örugglega mynd af mér þar.

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Góðan daginn góðir hálsar!

Ferðaðist til helju og aftur til baka núna um helgina. Að vísu fyrst var rosa gaman. Ég skal nú bara halda mig við hrakfallasögurnar því að ég veit að það er það eina sem að þið hafið áhuga á (reynið að halda öðru fram).

Ég og systur mínar fórum á djammið á föstudaginn, eins og áður hefur komið fram. Sem væri kannski ekki frásögufærandi ef að um venjulegt fólk væri að ræða. (Þið sem að kannist við eintökin skiljið þetta.) En ótrúlegt en satt þá héldum við okkur innan markanna þá um kvöldið (ok-sungum aðeins hærra en hinir á HR og tjöttuðum svolítið mikið við eigandann og svona yfir höfuð létum eins og við værum heima hjá okkur, en ekkert út í öfgar – miðað við okkur). Svo tókum við rútu í bæinn og gengum upp á Hverfisbarinn. Hverjum hefði DOTTIÐ í hug að þar myndu hættur kvöldsins leynast. Inger systir hittir einhvern sem að hún þekkti (geri ég ráð fyrir – en þó að hún þekki fólk ekkert sérstaklega hefur reyndar ekki stoppað hana í því að tala við það eins og hún þekki það). Og við erum á gangi og ég er voða mikið að segja eitthvað og horfi á þau á meðan... ...svo er ég á jörðinni (steyptar tröppur + ekki að horfa fram fyrir mig + of mikið áfengi = hvað heldurðu?) og Inger er gargandi “er allt í lagi með þig?”...

...það eina sem að kom upp úr mér var “Inger, það er spurning um að vera með forgangsröðina á hreinu. Það heltist upp úr bjórnum mínum” Og með þessu klöngraðist ég á fætur og hélt áfram.

Það var ekki fyrr en daginn eftir sem að ég sá afrakstur fallsins. Hruflaður, bólginn og marinn hnúi. Marblettir á hné, olnbogum (báðum- ???) og baki (?????). sár á hendi og hné – en bjórflaskan brotnaði ekki!!! Höfum það alveg á hreinu.

Memo to me: Ekki viss um að þetta lýsi mér á sérstaklega jákvæðan hátt. Ætti kannski að tékka á síðunni þeirra í Flúðó sjálf????

föstudagur, nóvember 07, 2003

Jæja!!!!

NÚNA ER HANN KOMINN. Föstudagur – ííííííhaaaaa! Vaknaði kl 5:30

Dagskráin:
1. Klára vinnu –má samt ekki vera að því en nóg að gera. Vaknaði kl 5:30
2. Rjúka og ná í Hönnu á leikskólan og Eric í skólan. Ef að ég næ ekki í hann þá kemur hann heim seint og síðar meir.
3. Rjúka í afmæli (barna) til Möggu systir. Stoppa stutt-því ég má alls ekki vera að því. Vaknaði kl 5:30
4. Rjúka heim og krakkar inn (tekur alltaf tíma – vert að taka það sérstakklega fram hér). Vaknaði kl 5:30
5. Taka mig til – ekki mikið því að þetta er gallabuxnadjamm – en eitthvað. Ætlaði aðgera það í morgun í ræktinni en, sáuð þið veðrið??? Til hvers.
6. Taka til á töskur með krökkum. Barnlaus í eina nótt. Úffff. Vaknaði kl 5:30
7. Bíða. !!!!!!! Eftir Sigga – hann ætlar að steypa “pínulítið” út í Garðabæ og svo kemur hann heim til að taka við börnum og fara með þau austur.
8. Bíða !!!
9. Bíða !!! Vaknaði kl 5:30
10. Bíða !!!
11. BÍÐA !!!!!!!
12. BBÍÍÐÐAA !!!!!!!!!!!! Verð að viðurkenna að það er orðin “pínulítill” pirringur núna. Vaknaði kl 5:30
13. Loksins kemur kall##&#$%&$# !!!!
14. Hann á að skutla mér á HR til að hitta stelpurnar, kemur inn þarf að setjast “aðeins” niður og svo þegar allir virðast vera að fara að hreyfa sig út um dyrnar þá... ...auðvitað þarf hann að fara í sturtu!!!! Hvernig dettur mér annað í hug. Vaknaði kl 5:30
15. Allir komnir út í bíl og ég næ á HR – til að sjá lokalagið í Idol keppninni. Já já, ég veit, einn enn veruleikasjónvarpsþátturinn. Hef ekkert verið að fela fíkninna.
16. Skella í mig áfengi í margskonar formi til að ná þeim hinum sem að eru með ca. 1-2 klst á undan mér í drykkjunni. Vaknaði kl 5:30
17. Villt djamm....... .....til svona 12:30.... ...vaknaði kl 5:30
18. Komið heim og drepist. Úr þreytu, áfengisneyslu eða bæði. Vaknaði kl 5:30

Hlakkar svo til – íííííííhaaaaaaaaaaaa – see ya.

Er að prufa svolítið!

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Kíkiði nú á linkana ykkar stúlkur mínar allt til að aðstoða :)

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Jæja, það er enginn lognmolla í dag o-nei nei!!!

Svaf lítið í nótt sökum fyrirbæris sem vatn nefnist. Ég var að segja það. Ekki það að ég sé með einhverja komplexa gagnvart vatni – nei nei. Ekkert svoleiðis. Allavega ekki þangað til í nótt, skulum við segja. Eigum við að tölta saman á byrjunina?

Ég fór í bað í gærkvöldi. Lá þar í mestu makindum og lét þreytuna líða úr mér. Fannst baðið kólna heldur hratt og ákvað að láta heitt vatn renna í það. Bara hægt og rólega til að yfirfallsopið gæti bara tekið við vatninu. Svo bara er ég í baði þegar að það er dinglað á dyrabjöllunni. Var samt ekki viss um að þetta væri hjá mér (heyrist vel á milli íbúða). Aftur dingalingaling og núna með allkröftugu banki. Og ég upp úr baðinu og skelli handklæði í kringum mig (og ekki því stærsta). Og til dyra höldum við! Opna hurðina og þar stendur ekki einn, nei, ALLIR nágrannarnir. Það er allt á floti!!!! Vatn undan hurðinni hjá mér og fram á stigaganginn og á öllu gólfinu í anddyrinu mínu. Og ALLIR að benda mér á þetta og ræða þetta hvað þetta geti nú verið og ég stend eins og álfur með aðra hönd fyrir aftan bar til að halda uppi handklæðinu. Frekar vandræðalegt. Og við skulum ekki tala einu sinni um skemmdirnar og píparann um miðja nótt og restina. Láttu ímyndunaraflið þitt bara fylla upp í. Allt í kringum baðið ónýtt – gaman gaman!!! Jibbííí

Píparinn kemur aftur í dag til að brjóta frá baðinu. Og hann gat ekki einu sinni verið þessi sexy iðnaðarmannatýpa. Nei, ég fæ óspennandi kallinn. Memo to me: Skipta um Tryggingafélag , kannski sætir iðnaðarmenn þar... ....Nei annars, á einn heima. Þ.e. iðnaðarmann.

ATH!!! Auglýsi eftir svefni. Svona ca. 8 klst langur, íklæddur rúminu mínu, ótruflaður með vakni í rólegheitum. Látið vita ef að þið sjáið hann.

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Smá í viðbót!

Hvaða árshátíð Sigga mín, er verið að fela eitthvað fyrir mér? Maður bara spyr! Memo to me: Tékka á orðinu leiðinleg athuga hvort að það er nokkuð mynd af mér þar!!!

Góðan daginn góðar sálir!

Í dag ætlum við að fara svolítið í það fyrirbæri sem að er ...

Nei bara að grínast. Survivor klúbburinn hittist auðvitað í gær. Voða gaman og Gulla alger meistara kokkur. Takk fyrir mig. Spiluðum Trivial – Sigga vann. Who cares? Svívirðingar í dulagerfi vinalegrar stríðni flugu í allar áttir og allt var eins og best var á kosið. Greyið stelpurnar losnuðu ekki við mig fyrr en eftir miðnætti og við allar farnar verulega að láta á sjá. Eða ég að minnsta kosti – vakandi frá kl.5:30 og sofnaði kl.2:30 kvöldið á undan. Smá svefngalsi í gangi snemma í gærkvöldi og er ekki alveg viss hvernig ég rataði heim til mín. Auto-pilot virkar fínt enn þá í Breiðholtinu. Get orðið mega full og ratað samt heim frá öndunum í Flúðó. (Áður en þið fáið kast – Ripp Rapp og Rupp – ok?) Hí hí hí.

Er ekki að fíla það að vakna annan hvorn dag kl.5:30 og hinn kl.7. Miklu betra að fara bara alla daga á fætur kl.5:30. Verð bara að komast á fætur þegar það er enginn annar að fara í ræktina nema ég. Ekki hugmynd hvernig maður fer að því en stefni að því að prufa á fimmtudaginn. Ehumm - ætti kannski ekki að vera að viðra þetta hér – ef að ég klikka þá fæ ég þetta svo í hausinn á mér aftur og aftur og ... En þetta er planið núna. Veitti líka ekkert smá að því, ekkert að gerast á vigtinni, bara 3var í viku. Þýðir ekkert þá að gefast upp bara bæta við sig tímum. Er það nokkuð?

Annars eru afskaplega litlar pælingar í dag annað en mig langar á djammið á föstudaginn og vill náttúrulega að sem flestir komi með mér. Þannig að í þetta skipti er þetta ekki Memo to me – heldur Memo to you: Fara á djammið á föstudaginn – ekki laugardaginn(Anný), á föstudaginn. Who’s with me!!! Vinsamlegast skráið ykkur til þáttöku á Shout out-ið hér að neðan.

mánudagur, nóvember 03, 2003

Tek mið af I sys og smá sem að allir ættu að vita um mig (og mína):

1. Ég er ekkert gömul. Verðið hérna sjálf einhvern tíman og þá eigiði eftir að fatta þetta.
2. Elska fjölskylduna mína.
3. Digga Survivor klúbbinn
4. Rass og hendur á karlmönnum. Hendur maður, vinnukallahendur - nammi namm.
5. Collin (Fucking) Farrel – hvenær sem er – hvar sem er.
6. Væri ekki svo líft á minni eyju – ekkert nema BAD BOYS. Segir ýmislegt – ha?
7. Eyjan alltaf opin.
8. Á ekki í vandræðum með að hafa gaman af líkams”smæð” minni vildi bara að allir væru ekki ALLTAF að “meika” fat jokes. Ha - þið vitið að þið eruð að því... þó að maður sé 20 kílóum of þung. Mind your own bussness.
9. Tattú sexy – “pírsing” ekki.
10. Elska að skapa með höndunum.
11. Listræn ( held ég) he he he
12. Þyrfti að fara oftar í klippingu og litun en það er svo langt að fara og erfitt að fá tíma ... hihi
13. Get sungið, leikið og dansað. Allaveg í veröldinni minni get ég þetta enn þá.
14. Er born sexy og meina það.
15. Breyta einhverju á mér – minni brjóst. Pottþétt.
16. Þoli ekki undirförult fólk og “grjót”.
17. Allir fá tækifæri nr.2.
18. Og sumir nr.3
19. Fíla ekki þorramat og villibráð. Ojjjj.
20. Mínir bestu vinir eru systur mínar og vinir þeirra – how pathetic?

On second thaught: Er ekki viss um að þetta sé eitthvað sem að allir þurfa að vita...