miðvikudagur, maí 26, 2004

Survivor – sagan endalausa

Hvað á þetta að þýða? Nú er allra allra síðasti þátturinn af Survivor búin og er þetta þá búið? NEIII! Það er einn þáttur eftir. Það á eftir að gefa það upp hver vinnur síðustu milluna. Hversu lengi er hægt að toga og teygja þessa hluti. Næsta season verður örugglega með 4-5 aukaþáttum. Þegar það er búið að kjósa lokamanneskjuna og svo koma allir saman í einhverjum sal og allir gera upp hlutina þá vill ég að þetta sé búið. Þessi þáttaröð er sú lengsta í sögunni að enda. Þetta er svona eins og í einhverri B-mafíósamyndinni. Einhver er skotinn og hann staulast yfir herbergið haldandi um brjóstið svo hrynur hann niður í stól og maður hugsar”dáinn!”. Nei þá koma lokaorðin, hóstið og andköfin. Hann lokar augunum. “Núna er hann dauður”. Nei, nei, auðvitað ekki hann tekur andköf og grípur í eitthvað og hendir því til núna eru tilþrifin í hámarki og dramað í algleymingi og maður hugsar”geturðu ekki bara drepist fíflið þitt???!!!” Þetta er ekkert smá pirrandi ... .... þetta er BARA pirrandi!!!

Memo to me: Þegar næsta sería á eyjunni er búin þá fer ég inn á survivor.com til að fá að vita restina – nenni þessu ekki.

þriðjudagur, maí 18, 2004

Weekend from hell!!!!!

Jæja nú er helgin fylgifiskur hennar (mánudagur) lokið. Thank God! Segi nú ekki meira. Byrjaði ágætlega þannig séð. Ákvað að fara í megaframkvæmdir heima hjá mér. Eða svoleiðis, Tók eldhúsið mitt ógeðslega vel í gegn og lakkaði hillur og borðið og svona. Svo að það var bókstaflega allt í drasli þar til svona klukkutíma fyrir Eurovision. Þá fór seinasti hluturinn í íbúðinni á sinn stað og ég í sturtu. Tekið mig til á mettíma ásamt því að búa til pizzudeig fyrir familíuna. Siggi kom heim rétt rúmlega 7 og ég lagði lokahönd á meistara verkið og með nesti í poka rölti til Inger. Þangað var komið í dúndurfjör og gaman. Fullt af stelpum og gaman eins og aðeins stelpur geta skemmt sér. Að vísu slæddust einhver tip.... þarna inn í einhvern tíma en við flæmdum þau burt án nokkurrar fyrirhafnar. Þetta leit út fyrir að ætla að verða bara ógó skemmtileg helgi, en obbobbobb ekki aldeilis. Ég var slegin upp úr þurru af manneskju sem er komin af jólakortalistanum mínum það sem eftir er. Og fór út fyrir til að bíða eftir stelpunum (og nota bene við vorum að fara út, fyrir þá sem að vilja meina að ég hafi rokið út) og til að losna frá fyrrnefndri manneskju. Ætlaði ekki í einhvern pakka við hana heima hjá systir minni. Þar sem að ég beið fyrir utan var allt púður farið úr mér og ég nennti ekki neinu veseni með þessa manneskju þannig að ég ákvað að fara heim. Það startaði rifrildi við hina systurina og þá rauk ég í burtu og fór heim. Svo kemur í ljós að það eru flestir frekar hneykslaðir og fúlir út í MIG fyrir að hún sló mig og hvernig ég brást við því. Í mínum bókum er það furðulegt. Ég gargaði ekki á hana ég sló hana ekki til baka ég dró mig í hlé. En ég auðsjáanlega gerði eitthvað mikið og stórt af mér. Skil ekki.

Svo var sofið, vaknað, tekið til rifist meira við systurina, farið út að keyra með dóttur mína og keyrt á bíl. 100 % óréttur og gaman. Komið heim, sofið, vaknað, komið sér af stað í vinnuna og svo fann ég bílinn minn í rúst. Búið að fara inn í hann um nóttina og stela og rústa öllu. GAMAAAANNNN!!!

Farið í vinnuna – síminn hringir. Læknirinn hennar Hönnu Karen. Hún á að fara í heilalínurit hið fyrsta. Mögulega komin með klofaveiki. Svona störuflog. Þarf að athuga þetta sem fyrst. Gaman að heyra í þér læknir, akkúrat í dag. Hvað meira? Farið með Hönnu til húðsjúkdómalæknis. Gleymdi skírteininu hennar heima – fer og næ í það. Nei, löggan út um allt. Á öllum gatnamótum að kíkja inn í alla bíla. Auðsjáanlega að leita að einhverjum. Einhverjum krimma. Einhverjum sem er ekki samfélaginu hæfur. Guð, hvað gerði ég núna??????????????

fimmtudagur, maí 13, 2004

Halló Eurovision

Nú er Eurovision-helgi framundan og gleði hjá Inger systir. Léttur pottur í gangi og gaman og ég ætla mér að vinna...

Varð ekkert smá pirruð á mánudaginn. Survivorkvöld og allar stelpurnar nýfarnar heim þegar Leno lætur setningu út úr sér sem að er bara hægt að skilja sem vísun í sigurvegara Survivor. Getur samt verið að ég hafi verið að lesa of mikið í málið en held samt ekki...

Memo to me: Fá einhvern til að sjá til þess að maðurinn minn verði voða þreyttur á laugardaginn kl 18:30 svo að hann fari heim og verði með börnunum í eurovision á meðan ég fer til Inger í gleði og glaum. Hvernig fer ég nú að því???......

föstudagur, maí 07, 2004

Veik!

Er að verða veik. Gaman. Sit hérna í vinnunni og er í úlpunni minni, inni á eflaust heitustu skrifstofu á landinu, og er að krókna. Beinverkir og gaman. Heyra í mér kvart, kvart kvart!!!

Það er að koma helgi og ég er happý. Finnst bara vikan og helgarnar líða fullhratt.

Memo to me: Athuga hvert seinustu 2 mánuðir flugu. Spurning hvort að þeir séu eins og farfuglarnir og komi þá aftur einhverntíman???...